Innlent

Sigurþór ráðinn framkvæmdastjóri SVFR

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sigurþór Gunnlaugsson.
Sigurþór Gunnlaugsson. Mynd/SVFR
Sigurþór Gunnlaugsson, viðskiptafræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, SVFR. Starfið var auglýst laust til umsóknar fyrir nokkrum misserum, þegar ljóst var að Ari Hermóður Jafetsson ætlaði að láta af störfum með vorinu, að því er segir í tilkynningu frá SVFR.

Í tilkynningu segir að á fimmta tug umsókna hafi borist um starfið, og þar af hafi verið margir hæfir umsækjendur. Sigurþór varð þó að endingu fyrir valinu en hann er viðskiptafræðimenntaður og með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann hefur mikla reynslu af rekstri, verkferla- og fjárhagsáætlanagerð og kostnaðareftirliti. Hann var markaðsstjóri Kringlunnar og síðar stjórnandi hjá Air Atlanta Icelandic, m.a. stöðvarstjóri í Bretlandi, Indlandi og Sádi Arabíu, yfirmaður á flugrekstrarsviði, útstöðva og ferðaþjónustu.

Sigurþór mun hefja störf í næstu viku og segist hlakka mikið til.

„SVFR er einhver merkasti félagsskapur landsins, með magnaða sögu og frábær ársvæði á leigu. Ég tek við góðu búi, þar sem búið er að endurnýja samninga um öll lykilsvæði félagsins og við getum einbeitt okkur enn frekar að þjónustu við félagsmenn,“ er haft eftir Sigurþóri í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×