Innlent

Lífeyristökualdur íslenskra slökkviliðsmanna hærri en gengur og gerist í Evrópu

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Magnús Smári Smárason,  formaður Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að endurskoða þurfi lífeyristökualdur þeirra sem vinna erfið og hættuleg störf.
Magnús Smári Smárason, formaður Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að endurskoða þurfi lífeyristökualdur þeirra sem vinna erfið og hættuleg störf.
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hér á landi þurfa að vinna sex árum lengur en starfsfélagar þeirra í Noregi og Danmörku til þess að fá fullan lífeyri. Magnús Smári Magnússon, formaður Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, segir að endurskoða þurfi þetta. Starfið sé líkamlega og andlega erfitt og fáir þoli slíkt álag fram á sjötugsaldur.

Í skoðana pistli sem birtist í fréttablaðinu í gær bendir Magnús Smári Smárason, formaður slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, á að breyta þurfi lífeyrisaldri þeirra sem vinna erfið og hættuleg störf. Hann vill að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fái fullan lífeyri frá 60 ára aldri. Hér á landi þurfi þeir að starfa til 67 ára aldurs en reynslan sýni að fái nái þeim áfanga.

„Þetta er  búið að vera baráttumál slökkviliðsmanna lengi hér á Íslandi. Það er þannig að þessi vinna gerir líkamlegar kröfur til þeirra sem henni sinna. Með aldrinum verður erfiðara og erfiðara að uppfylla þessa kröfu. Síðan eru það önnur atriði eins og við höfum bent á varðanid aukna tíðni  krabbameina. Síðan er andlega hliðin annar hluti af þessu. Þannig að það er ekki rosalega farsælt að eldast í starfi,“ segir hann.

Málið týnt hjá ráðuneytinu

Lífeyristökualdur íslenskra slökkviliðsmanna sé samkvæmt könnun European Firefighters Network hærri en gengur og gerist í Evrópu. Árið 2016 hafi ráðherra verið falið að skipa starfshóp um snemmtöku lífeyris fyrir erfið og hættuleg störf. Nefndin átti að skila af sér fyrir árslok 2017. Hins vegar hefur ekkert orðið af því.



„Mér finnst þetta bara hafa týnst. Þetta virðist hafa sofnað í þessari nefnd. Við erum ekki eini hópurinn sem fellur undir þessa snemmtöku lífeyris. Það er bara mjög mikilvægt að þessi starfshópur ljúki þessari vinnu. Það eru allir að bíða eftir þessum niðurstöðum svo það sé hægt að gera eitthvað,“ segir hann.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×