Innlent

Tilkynnt um eld í bát í Njarðvík

Birgir Olgeirsson skrifar
Slökkviliðsmenn á leið á vettvang.
Slökkviliðsmenn á leið á vettvang. Vísir/Vilhelm
Slökkviliðsmenn á Suðurnesjum eru nú á leið í útkall vegna tilkynningar um eld í bát í Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja barst tilkynningin fyrir skömmu og ekki vitað um umfang eldsins þegar þetta er ritað.

Verður fréttin uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir. 

Uppfært klukka 14:30: 

Mikinn reyk lagði frá bátnum þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn. Ekki er vitað hvað olli þeim reyk en slökkviliðsmenn reykræstu bátinn og er slökkvistarfi nú lokið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×