Innlent

Kjarasamningar verði virtir

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ. Fréttablaðið/Anton Brink
Miðstjórn ASÍ harmar viðbrögð þeirra atvinnurekenda sem hafa gripið til uppsagna á launakjörum starfsmanna vegna kostnaðarauka í kjölfar nýsamþykktra kjarasamninga.

„Þeir atvinnurekendur sem gripið hafa til uppsagna á ráðningarkjörum starfsmanna sinna nú í kjölfar undirritunar og samþykkis kjarasamninga ganga gegn markmiðum samninganna og lýsa því beinlínis yfir að þeir hyggist ekki efna þá,“ segir í ályktuninni.

Þá skorar miðstjórnin á atvinnurekendur að draga þegar til baka uppsagnir sem byggðar eru á framangreindum forsendum. ASÍ áskilur öllum aðildarsamtökum sínum rétt til þess að lýsa yfir einhliða riftun kjarasamninga vegna þessara sömu atvinnurekenda vegna þess ásetnings að ætla sér ekki að virða samningana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×