Enski boltinn

Leikmennirnir sem toppliðin í ensku deildinni ætla að kaupa í sumar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Enski landsliðsmaðurinn Jadon Sancho er eftirsóttur.
Enski landsliðsmaðurinn Jadon Sancho er eftirsóttur. Getty/Rob Newell
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu lauk um helgina og næsti leikur í deildinni fer ekki fram fyrr en í ágúst. Það á aftur á móti mikið eftir að gerast í deildinni þangað til.

Ensku úrvalsdeildarliðin eru þekkt fyrir að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum á sumrin og það er öruggt að ný andlit munu sjást í ensku deildinni næsta haust.

Breska ríkisútvarpið tók fyrir toppliðin sex og velti því fyrir sér hvað þau ætli að gera á leikmannamarkaðnum í sumar. Þetta eru liðin Manchester City, Liverpool, Chelsea, Tottenham, Arsenal og Manchester United og þetta er fróðleg samantekt.

Flestra augu verða á Ole Gunnar Solskjær og Manchester United en það er búist við miklum breytingum þar á bæ. Solskjær hefur boðað þær enda endaði United liðið 32 stigum á eftir meisturum Manchester City.





Samkvæmt úttekt BBC þá vantar Englandsmeistara Manchester City djúpan miðjumann og miðvörð vinstra megin. Liðið hefur verið öflugt í að styrkja liðið á síðustu árum og það verður væntanlega ekki breyting á því núna.

Hinn 22 ára gamli miðjumaður Rodri hjá Atletico Madrid þykir líklegur en City ætlar ekki að reyna að kaupa Bruno Fernandes frá Sporting Lissabon. City hefur líka áhuga á Aaron Wan-Bissaka, 21 árs bakverði Crystal Palace.

BBC á ekki von á miklum breytingum hjá Liverpool og líklega mun Jürgen Klopp í mesta lagi kaupa einn til tvo leikmenn. Liðið mun hafa augun opin fyrir vinstri bakverði, kannski miðverði og mögulega fjölhæfum sóknarmanni sem gæti spilar margar stöður framarlega á vellinum.

Liverpool mun aftur á móti ekki selja sína bestu leikmenn sem eru mjög góðar fréttir fyrir stuðningsmennina enda hafa mörg félög áhuga á mönnum eins og Mohamed Salah og Roberto Firmino.

Chelsea getur lítið gert haldi félagsskiptabannið sem félagið var dæmt í á dögunum. Þeir hafa áfrýjað en niðurstöður úr Íþróttadómstólnum gætu kannski ekki komið fyrr en í júlí og þá er lítill tími til stefnu.

Stærsta spurningin er sem áður um framtíð Eden Hazard sem er væntanlega á förum til Real Madrid í sumar. Sleppi Chelsea við bannið er ljóst að félagið mun láta til sín taka á markaðnum eins og áður.





Tottenham hefur ekkert gert í síðustu tveimur félagsskiptagluggum og kemst varla upp með það þriðja gluggann í röð. Tottenham hefur mikinn áhuga á Ryan Sessegnon hjá Fulham en það hafa fleiri félög.

Danski miðjumaðurinn Christian Eriksen verður mögulega seldur í sumar þar sem hann vill ekki framlengja samninginn sinn. Victor Wanyama og mögulega Eric Dier gætu líka yfirgefið Tottenham. Fari allir þessir menn þá þarf Tottenham að kaupa inn á miðjuna.

Liðið vantar líka framherja því það er erfitt að þurfa alltaf treysta á hinn 34 ára gamla Fernando Llorente þegar reynir á breiddina í framlínu liðsins.

Arsenal mun gera dauðaleit að eftirmanni Aaron Ramsey og félagið ætti að fá mun meiri pening í nýja leikmenn takist því að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni með sigri í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Liðið vantar miðvörð og miðjumann í stað Aaron Ramsey. Arsenal gæti einnig reynt að finna sókndjarfan mann á vænginn. Svo þarf Arsenal að ákveða hvort að ungu strákarnir verðu með á fullu næsta vetur eða hvort þeir verða sendir út í lán.





Manchester United mun örugglega verða stórtækt á markaðnum. Fjöldi leikmanna munu yfirgefa félagið og margir verða keyptir. Það þarf að hreinsa til á Old Trafford og nýr stjóri gerir sér vel grein fyrir því eftir skelfilegan endi á tímabilinu.

United hefur mikinn áhuga á það kaupa miðvörðinn Kalidou Koulibaly frá Napoli en hann gæti verið mjög dýr. Þá mun United keppa við City um bakvörðinn Aaron Wan-Bissaka hjá Crystal Palace.

Mjög ofarlega á óskalistanum er síðan Jadon Sancho, ungi enski landsliðsmaðurinn hjá Dortmund. Jadon Sancho vildi koma til United en það gæti hafa breyst nú þegar ljóst er að liðið verður ekki í Meistaradeildinni. PSG, Barcelona og Real Madrid vilja líka fá Sancho þannig að það er mikil samkeppni um þennan 19 ára strák sem mun örugglega fara í stærra lið í sumar.

Það má finna frekari vangaveltur um toppliðin og leikmannamarkaðinn í sumar með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×