Lífið

Vorspá Siggu Kling komin á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sumarið kemur með Siggu Kling.
Sumarið kemur með Siggu Kling.
Stjörnuspár Sigríðar Klingenberg spámiðils hafa notið gríðarlega vinsælda undanfarin ár. Mánaðarlega spáir hún fyrir lesendum Vísis, í formi texta og myndbands, en spár hennar fyrir maí má sjá hér að neðan.

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.

Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.

Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com 


Tengdar fréttir

Vorspá Siggu Kling – Steingeitin: Verður mikil spenna í ástinni

Elsku Steingeitin mín, þú ert eins og íslenski fáninn, dregur fram tilfinningar hvort sem þú ert þaninn í fulla eða hálfa stöng. Þú ert áberandi þó þér finnist það ekki, ert fyrirmynd og annarra manna kraftur þó það sé ekki alltaf þín tilfinning.

Vorspá Siggu Kling – Tvíburarnir: Hefur svo smitandi gleðiorku

Elsku Tvíburinn minn, það er svo sannarlega mikið að gerast í kortunum þínum, þú færð skýr skilaboð um velgengni, þú vekur athygli og það verða margir sem stóla á þig, en þú þarft bara að anda að þér pínulitlu kæruleysi til að sjá að þú hefur sungið sigurlagið í lífsins Eurovision.

Vorspá Siggu Kling – Meyjan: Þú sérð einföldu hlutina í öðru ljósi

Elsku myndarlega og heillandi Meyjan mín, þú átt eftir að komast upp með allt sem þú tekur þér fyrir hendur í sumar og verður með stjörnur í augunum og sjálfsmyndin byggist upp og verður betri með hverjum mánuði sem líður, bæði í sambandi við karakter og starfsframa.

Vorspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Gengur frá óleystum málum

Elsku Bogmaðurinn minn, þetta er svo sannarlega þinn tími til að skína, maí gefur þér töluna einn eða ÁS sem er tímabil upphafs af spennandi áskorunum sem sérstaklega beinast að sjálfum þér og nýju upphafi og alls kyns öðrum sem þú tekur fegins hendi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×