Viðskipti erlent

Banna veð­mála­aug­lýsingu sem grínast með fram­hjá­hald Giggs

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Rhodri Giggs segir í auglýsingunni að líf sitt hafi tekið stórstígum breytingum til hins betra eftir að hann fór að veðja reglulega.
Rhodri Giggs segir í auglýsingunni að líf sitt hafi tekið stórstígum breytingum til hins betra eftir að hann fór að veðja reglulega. skjáskot

Breska auglýsingaráðið hefur bannað veðmálasíðunni Paddy Power að birta auglýsingar sem skörtuðu Rhodri Giggs í aðalhlutverki. Auglýsingin þótti sveipa veðmál dýrðarljóma og teikna þau upp sem ávísun á velmegun. Umræddur Giggs er bróðir knattspyrnugoðsagnarinnar Ryan Giggs, fyrrum leikmanns Manchester United, sem nú þjálfar velska karlalandsliðið.



Auglýsingunni var ætlað að vekja athygli á fríðindakerfi Paddy Power, sem verðlaunar þá sem veðja reglulega. Í auglýsingunni, sem sjá má hér að neðan, segist Rhodri Giggs hafa lagt mikið upp úr hollustu og tryggð alla sína ævi - sem ætla má að sé skot á bróður hans. Eins og frægt er orðið hélt Ryan Giggs við eiginkonu bróður síns um átta ára skeið í upphafi aldarinnar.

Hvað sem því líður segist Rhodri Giggs í auglýsingunni ætíð hafa haldið sig við sömu knæpuna, mætt á æfingar á réttum tíma og haldið tryggð við líkamsræktarstöðina sína. Það hafi hins vegar ekki skilað honum neinu. Líf hans hafi ekki batnað fyrr en hann kynntist fyrrnefndu fríðindakerfi og segist Paddy Power ævinlega þakklátur, áður en hann ekur svo burt á dýrum sportbíl.



Breska auglýsingaráðið segist hafa fengið fimm formlegar kvartanir vegna auglýsingarinnar, sem fór í sýningu í byrjun febrúar. Auglýsingin þætti óábyrg því hún sveipar veðmál dýrðarljóma og lætur þau líta út eins og einfalda leið til að efnast. Paddy Power svaraði gagnrýninni og benti á að Rhodri Giggs sæist ekki veðja í auglýsingunni, auk þess sem fyrrnefndur sportbíll hefði ekki verið keyptur fyrir vinningsfé.



Sjá einnig: Bróðir minn er frábær fótboltamaður en slæm manneskja

Auglýsingaráðið féllst þó ekki á mótrökin og ákvað að banna auglýsinguna, sem er uppfull af hvers kyns vísunum í framhjáhald Ryan Giggs. „Auglýsingin gefur til kynna að Rhodri láti ekki hið meinta framhjáhald lengur hafa áhrif á sig, hann sé hættur að einblína á tryggð og sé að uppskera ríkulega fyrir vikið,“ segir í úrskurði auglýsingaráðsins. 

„Auglýsingin hvetur áhorfandann til að gera slíkt hið sama og að leiðin til þess sé að skrá sig í Paddy Power’s Rewards Club [fríðindakerfið]. Það er okkar mat að auglýsingin hafi gefið í skyn að veðmál séu leið til að öðlast fjárhagslegt öryggi og bæta sjálfsímynd sína. Í því ljósi teljum við auglýsinguna óábyrga.“


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×