Innlent

Loftslagsmál í brennipunkti í predikun biskups

Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Vísir/ANton
Í páskapredikun sr. Agnesar Sigurðardóttur, biskups, sem flutt var í Dómkirkjunni í morgun talar hún um hve loftslagsbreytingar séu aðkallandi vandamál sem takast þurfi á við. Ekki megi gefast upp og vitundarvakning sem hefur orðið í samfélaginu sé tákn vonar.

Þar vísar hún í yfirlýsingu Davids Attenborough, sem bent hefur á að jarðarbúar standi frammi fyrir „óafturkræfum skaða á náttúrunni og samfélagslegu hruni,“ en enn sé von. Upprisuboðskapur Krists sé boðskapur vonar og lífs. Hún segir einnig að nú sé komið að siðferðinu, hugarfarinu og lífsstefnunni og að jarðarbúar verði að breyta um lífsstíl. Kristin trú geti hjálpað í þeim verkefnum, þar sem hún sé trú vonar og kærleika. Auk þess nefndi hún Gretu Thunberg og gagnrýni hennar á leiðtoga Evrópusambandsins fyrir aðgerðarleysi í loftslagsmálum, en hún sé fyrirmynd ungs fólks og hafi haft áhrif á heimsbyggðina og hugsunarhátt fólks.

Hún nefnir einnig að söfnuðir hér á landi séu vakandi fyrir umhverfismálum og vinni eftir skipulagi til að fá umhverfisvottun sem „grænar kirkjur.“

„Þess vegna er svo gott að minnast upprisunnar. Minnast þess að eftir krossfestinguna kom upprisan. Eftir dauðann kom lífið. Eftir vonleysið kom vonin. Eftir veturinn kemur vorið. Við skulum því aldrei gefast upp fyrir því sem miður fer, eða því sem ógnar okkur, hræðir okkur eða veldur okkur hverskonar sársauka, því upprisa Jesú boðar okkur nýja tíma og nýja von.“

Hægt er að nálgast prédikunina í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×