Viðskipti innlent

Vöxtur Arctic Adventures ekki dregið úr gæðum

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Arctic Adventures.
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Arctic Adventures.
„Það er alrangt að dregið hafi úr gæðum í ferðaþjónustu samhliða vexti Arctic Adventures. Það endurspeglast meðal annars í fjölbreyttara vöruframboði, sem margir ferðamenn sækjast í, og auknu öryggi ferðamanna,“ segir Jón Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Arctic Adventures.

Leiðsögn, stéttarfélag leiðsögumanna, sagði í bréfi til Samkeppniseftirlitsins að aukin stærð og markaðsstyrkur Arctic Adventures hafi hingað til leitt til þess að gæðum ferðaþjónustunnar hafi hrakað í hlutfalli við vaxandi styrk fyrirtækisins.

Stéttarfélag leiðsögumanna, með Indriða Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóra, í stafni, lagðist gegn samruna Arctic Adventures og Into the Glacier og fleiri félaga, sem Samkeppniseftirlitið heimilaði og taldi hann geta haft áhrif á kjör leiðsögumanna.

„Viðskiptavinum fjölgaði verulega í fyrra. Þeir töldu 300 þúsund og það stefnir í verulega aukningu í ár. Ef þjónustan væri slök myndu ferðamennirnir leita annað. Á tímum samfélagsmiðla og ferðasíðna spyrst fljótt út þegar fyrirtæki veita slæma þjónustu,“ segir Jón Þór.

Í bréfi Leiðsagnar segir að fjöldi starfsmanna hjá Arctic Adventures hafi leitað til stéttarfélagsins vegna vanefnda fyrirtækisins á kjarasamningi. Aukinheldur séu starfsmenn, fyrst og fremst erlendir, skráðir í önnur stéttarfélög sem ekki fylgi kjarasamningi fyrir störfin og hóti atvinnumissi leiti þeir til félagsins.

„Þetta er ekki rétt. Við höfum ekki fengið kvartanir frá starfsfólki og ef það koma upp vandamál leysum við að sjálfsögðu úr þeim. Okkur er annt um starfsmenn okkar. Hér starfa hátt í 200 leiðsögumenn, íslenskir og erlendir. Margir íslensku leiðsögumannanna eru með þeim reyndari sem starfa á landinu.

Starfsmenn hafa frjálsar hendur í hvaða stéttarfélagi þeir eru, enda er félagafrelsi mikilvægt í íslenskum lögum. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því að þeir kjósi að vera í öðrum stéttarfélögum, til að mynda sjúkraréttindi eða aðgangur að orlofshúsum. Kjarasamningur leiðsögumanna stendur sama í hvaða stéttarfélagi fólk er.“

Jón Þór segir að það sé misskilningur að laun leiðsögumanna hafi lækkað við samruna við Extreme Iceland árið 2017. Samlegð hafi verið í samrunanum sem hafi gert það að verkum að færra starfsfólk þurfi til. „Arctic Adventures tók yfir framkvæmd á öllum ferðum og þegar í ljós kom að bæta þurfti við starfsfólki hjá Arctic voru þau störf auglýst, og sóttu margir um sem áður höfðu unnið fyrir Extreme Iceland og eru núna mikilvægur hluti af okkar leiðsögumannahópi. Þetta snerist ekki um að ráða fólk á lægra kaupi.“




Tengdar fréttir

Lenti í hættulegustu aðstæðunum á Íslandi

Ása Steinarsdóttir er með tvær háskólagráður og nærri 130 þúsund fylgjendur á Insta­gram. Hún gaf 9-5 lífið upp á bátin og lagðist í ferðalög með myndavélina í farteskinu. Ása ruddi sér leið í karlaheimi náttúruljósmyndunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×