Viðskipti erlent

Flugmenn stærsta flugfélags heims krefjast meiri þjálfunar svo endurheimta megi traust á MAX-vélunum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
American Airlines er stærsta flugfélag heims.
American Airlines er stærsta flugfélag heims. Vísir/Getty
Flugmenn American Airlines hafa varað flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum við því að fyrirhuguð þjálfunaráætlun vegna uppfærslu á stjórnkerfi 737 MAX-vélanna sé ekki fullnægjandi að þeirra mati.

Þetta kemur fram í bréfi sem Allied Pilots samtökin hafa sent flugmálayfirvöldum í Bandaríkunum en flugmenn American Airlines, stærsta flugfélags í heimi, eru meðlimir í samtökunum. Flugfélagið er einn helsti kaupandi á 737 MAX-vélunum.

Boeing finnur nú hörðum höndum að því að uppfæra stjórnkerfi 737 MAX-vélanna svo aflétta megi flugbanni á vélunum eftir tvö mannskæð flugslys í Eþíópíu og Indónesíu. Uppfærslan og þjálfunaráætlun vegna hennar bíður nú lokasamþykkis flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum.

Sérfræðingar í sérstakri nefnd flugmálayfirvalda telja að flugmenn þurfi aðeins tölvuþjálfun til þess að ná skilja MCAS-kerfið svokallaða, sem talið er hafa spilað stóra rullu í flugslysunum tveimur. Kerfinu er ætlað að koma í veg fyrir ofris en virðist hafa tekið völdin af flugmönnum í flugslysunum tveimur.

Hluti þeirra véla sem bíða á jörðu niðri.AP/Elaine Thompson
Flugmenn í Allied Pilots telja hins vegar mikilvægt að gert sé ráð fyrir tíma í flughermi í þjálfunaráætlunni. EKki sé fullnægjandi að fá tölvuþjálfun til þess að endurheimta traust flugmanna og almennings á flugvélinni, að því er segir í frétt Reuters um bréf Allied Pilots.

Kalla þeir eftir því að flugmenn fái þjálfun í flughermum sem líki eftir þeim aðstæðum sem flugmenn Lion Air og Ethiopian Airlines stóðu frammi fyrir er flugvélarnar sem þeir stýrðu hröpuðu.

Nái kröfur flugmanna American Airlines fram að ganga gæti það tafið afléttingu flugbannsins á MAX-vélunum enda mun það taka dágóðan tíma að skipuleggja æfingar í flughermum. Forstjóri American Airlines segir þó að flugfélagið muni hefja flug með vélunum um leið og bandarísk flugmálayfirvöld aflétta flugbanninnu, jafn vel þó að flugbanninu hafi ekki verið aflétt í öðrum ríkjum og svæðum um heim allan.


Tengdar fréttir

Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur

Icelandair hefur rætt við Boeing um skaðabætur vegna stýrikerfisgalla í Boeing 737 MAX 8. Flugfélagið hefur keypt níu slíkar þotur frá Boeing en þær eru kyrrsettar sem stendur.

Þrjár MAX-vélar Icelandair safna ryki við Boeing Field

Enn er alls óvíst hvenær MAX-flugvélar bandaríska flugframleiðands Boeing frá grænt ljós á að hefja sig til lofts á ný. Óafhentar vélar hrannast nú upp við verksmiðju Boeing í grennd við Seattle.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×