Viðskipti innlent

Neyt­endur veri vakandi fyrir var­huga­verðum vöggum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Umræddar vöggur, Rock N' Play Sleepers frá Fisher-Price.
Umræddar vöggur, Rock N' Play Sleepers frá Fisher-Price. CPSC
Leikfangaframleiðandinn Fisher-Price hefur innkallað næstum 5 milljón barnavöggur en talið er að rúmlega 30 ungabörn hafi látið lífið í vöggunum síðastliðinn áratug. Ekki er útilokað að einhverjar slíkar vöggur kunni að vera í notkun á Íslandi og eru neytendur því beðnir um að hafa varann á.

Innköllunin nær til vagga af gerðinni Rock N' Play Sleepers sem talið er að hafi selst í 4,7 milljónum eintaka frá árinu 2009, þegar Fisher-Price kynnti þau fyrst fram á sjónarsviðið. Mynd af umræddum vöggum má sjá hér að ofan.

Bandaríska neytendaverndarráðið greindi frá innkölluninni í gær en að sögn ráðsins hafa hið minnsta þrjátíu börn látið lífið í vöggunum. Flest dauðsföllin eiga að hafa átt sér stað þegar börnin sneru sér, ýmist á magann eða hliðina, og voru öll börnin meira en þriggja mánaða gömul.

Fisher-Price hefur áður varað við því að hætta eigi notkun vagganna þegar börnin eru farin að geta snúið sér við. Þrátt fyrir það segist fyrirtækið ekki efast um öryggi vörunnar.

Ekki selt á Íslandi, gæti verið á Íslandi

Samkvæmt upplýsingum frá Neytendastofu er stofnunin meðvituð um innköllunina. Eftir því sem Neytendastofa kemst næst hafa vöggurnar ekki verið til sölu hér á landi eða annars staðar á Norðurlöndum.

Hins vegar sé alþekkt að Íslendingar kaupi mikið af barnavörum í alþjóðlegum netverslunum eða í Bandaríkjunum og láti flytja til landsins. Því sé ekki loku fyrir það skotið að Rock N' Play Sleepers frá Fisher-Price megi finna á einhverjum íslenskum heimilum.

Neytendastofa hvetur fólk því til að vera á varðbergi og mun stofnunin birta frekari upplýsingar á heimasíðu sinni eftir helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×