Lífið

Kántr­í­söngvari lést við tökur á tón­listar­mynd­bandi

Atli Ísleifsson skrifar
Justin Carter í tónlistarmyndbandinu við lagið Perfect.
Justin Carter í tónlistarmyndbandinu við lagið Perfect.
Bandaríski kántrísöngvarinn Justin Carter lést við tökur á tónlistarmyndbandi eftir að hann varð fyrir voðaskoti í Houston í Texas síðastliðinn laugardag. Hann varð 35 ára gamall.

Móðir söngvarans, Cindy McClellan, segir í samtali við Fox News að Carter hafi óvart hleypt af byssu sem hann var með í vasanum og hafnaði skotið í höfði hans. Byssan var notuð sem leikmunur í tökum á myndbandinu.

McClellan segir son sinn hafa verið frábæran listamann og manneskja. Þá hafi hann verið mjög trúaður. „Hann var með biblíu í svefnherberginu, upptökustúdíóinu og í bílnum,“ segir McClellan.





People, USA Today, Entertainment Weekly og fleiri bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað um lát Carter og lýsa honum sem söngvara „á uppleið“. Hann hafði nýverið undirritað útgáfusamning við Triple Threat Management og hafði hann í hyggju að fara á tónleikaferðalag um fjögur ríki Bandaríkjanna.

Meðal þekktustu laga söngvarans má nefna PerfectNu Breed og Love Affair. Tónlistarmyndband við lagið Perfect var frumsýnt fyrr í þessum mánuði þar sem hann notaðist einnig við skotvopn sem leikmun.

Carter lætur eftir sig tvær dætur, Dixie og Kaylee.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×