Erdogan í stúkunni er Tyrkland rúllaði yfir Moldóvu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Erdogan heilsar aðdáendum í kvöld.
Erdogan heilsar aðdáendum í kvöld. vísir/getty
Tyrkland lenti í engum vandræðum með Moldóvu, 4-0, er liðin mættust í riðli okkar Íslendinga fyrir undankeppni EM 2020.

Tyrkir unnu 2-0 sigur á Albaníu á föstudaginn og héldu uppteknum hætti í kvöld á heimavelli er þeir skoruðu fjögur mörk geng Móldóvú.

Hasan Ali Kaldirim skoraði fyrsta markið á 24. mínútu og tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Cenk Tosun, samherja Gylfa Sigurðssonar hjá Everton, forystuna.

Þannig stóðu leikar í hálfleik en Burak Yilmaz klúðraði vítaspyrnu á 53. mínútu. Tosun skoraði annað mark sitt og þriðja mark Tyrkja mínútu síðar.

Fjórða og síðasta markið kom eftir hornspyrnu en það skoraði varnarmaðurinn Kaan Ayhan. Lokatölur 4-0 og Tyrkirnir því með sex stig á toppi riðilsins eftir tvo leikina. Þeir eru með markatöluna 6-0.

Móldóva er hins vegar án stiga eftir fyrstu tvo leikina en þeir töpuðu fyrir Frökkum 4-1 á föstudagskvöldið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira