Erlent

Að minnsta kosti 49 látnir eftir skotárás á moskur í Nýja-Sjálandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi í Christchurch.
Frá vettvangi í Christchurch. vísir/epa
Að minnsta kosti 49 manns létu lífið og 48 eru slasaðir eftir að skotárás var gerð á tvær moskur í borginni Christchurch í Nýja-Sjálandi í nótt.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, segir að aðeins sé hægt að lýsa árásinni sem hryðjuverkaárás.

Fjórir eru í haldi grunaðir um verknaðinn, þrír karlar og ein kona, en Mike Bush, lögreglustjóri, segist ekki geta útilokað að fleiri sem eigi aðild að ódæðinu gangi lausir.

 

Einn af árásarmönnunum er ástralskur ríkisborgari. Árásarmennirnir er lýst sem öfgahægrimönnum.

Ardern ávarpaði þjóð sína núna rétt rúmlega hálfsjö að íslenskum tíma. Áður hafði hún ávarpað þjóðina í nótt, skömmu eftir árásina. Að sögn Ardern var enginn hinna grunuðu á lista yfirvalda yfir mögulega hryðjuverkamenn.







„Við Nýsjálendingar vorum ekki valin í þessa árás vegna þess að við látum rasisma óátalinn eða vegna þess að við erum land öfganna. Við vorum einmitt valin vegna þess að við erum ekkert af þessu,“ sagði Ardern í ávarpi sínu nú í morgun.

„Við stöndum fyrir fjölbreytni og samkennd, að vera heimili fyrir þá sem deila okkar gildum, skjól fyrir þá sem það þurfa. Þessi gildi verða ekki og mega ekki brotna vegna þessarar árásar. Við erum stolt þjóð með meira en 200 kynþætti og 160 tungumál,“ sagði Ardern.

Vitni hafa lýst því að þau hafi séð fólk hlaupa burt eins og það ætti lífið að leysa. Þá lá blóðugt fólk á jörðinni fyrir utan aðra moskuna.

Yfirvöld hafa ráðlagt öllum moskum í Christchurch að loka þar til annað hefur verið ákveðið enda sé um fordæmalausa árás að ræða.

Lögreglan hefur staðfest að hafa fundið bíla sem búið var að festa sprengjur við og hefur að öllum líkindum átt að sprengja þá í loft upp.

Fréttin var uppfærð klukkan 08:09 með upplýsingum um fjölda látinna.

Athugasemdakerfinu hefur verið lokað við þessa frétt vegna hatursfullra ummæla.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×