Tíska og hönnun

Halda hvort öðru á tánum

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Ýmis verk úr smiðju StudioStudio síðustu misseri. Verk Rögnu Róbertsdóttur gerð skil í fallegu bókverki og bókarkápa skáldsögu Hallgríms Helgasonar þótti frumleg.
Ýmis verk úr smiðju StudioStudio síðustu misseri. Verk Rögnu Róbertsdóttur gerð skil í fallegu bókverki og bókarkápa skáldsögu Hallgríms Helgasonar þótti frumleg. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Guðmundsdóttir hjá StudioStudio hafa hannað nýtt útlit fyrir HönnunarMars í ár. Þau hafa vakið mikla eftirtekt fyrir verk sín undanfarið. Þau sérhæfa sig í bókahönnun, ímyndarvinnu, týpógrafíu, umbroti og ýmsu ritstjórnarefni og vinna þvert á geira, bæði fyrir listamenn og fyrirtæki.

Arnar er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og kennir þar sem stundakennari. Birna er einnig grafískur hönnuður frá Listaháskólanum og er einnig með meistaragráðu í bókahönnun frá Reading-háskóla í Bretlandi. Birna er fagstjóri í grafískri hönnun í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Þau starfa saman í Gimli, fallegu turnhúsi á Bernhöfts­torfunni við Lækjargötu.

Sextíu kíló af sólskini kápan.Mynd/Studiostudio
„Við höfum unnið saman í fimm ár. Við kynntumst í gegnum fagið og sameiginlega vini,“ segir Birna. „Okkur finnst gott að vinna saman því við höfum svipaða sýn,“ segir hún.

„Við höfum misjafna styrkleika og hífum hvort annað upp,“ segir Arnar.

„Já, það mætti segja að við höldum hvort öðru á tánum,“ segir Birna.

Eitt af nýlegum verkum Arnars og Birnu er bókarkápa, á Sextíu kíló af sólskini, eftir Hallgrím Helgason. Bókarkápan var af álitsgjöfum Fréttablaðsins valin sú besta í ár og vakti almenna eftirtekt fyrir vandað útlit sem hæfði efni bókarinnar vel.

Mynd/Studiostudio

Fundur í Hrísey

Hugmyndavinnan hófst í Hrísey. „Það sem virkaði vel í þessu ferli er hvað samtalið við hann Hallgrím var gott,“ segir Arnar. „Við vorum í sumarfríi norður í landi þegar Hallgrímur hafði samband við okkur vegna bókarinnar og var þá sjálfur á leiðinni í frí norður, við hittumst í Hrísey og áttum þar samtal um bókina og innihald hennar,“ segir Arnar.

„Hann var búinn að sanka að sér myndrænum tilvísunum sem honum þótti viðeigandi. Til dæmis auglýsingum frá þessum tíma, gömlum eldspýtustokkum og slíku,“ segir Birna.

Verk þeirra Arnars og Birnu eru fjölbreytt og ólík innbyrðis þótt eflaust megi greina þráð. Veigamikil bók um verk Rögnu Róbertsdóttur er þar á meðal.

„Það er allt öðruvísi verkefni með erlendum útgefanda. Það var stærra samtal í gangi, maður þurfti að gera sér ferð á meginlandið. Lengra en út í Hrísey,“ segir Birna og hlær.

„En það var eins með hana. Við áttum gott samtal við hana og fengum aðgang að öllum hennar verkum,“ segir Arnar. Birna tekur undir og segir samtalið mikilvægt.

„Já, það er vænlegast til vinnings. Í samtalinu finnur maður líka hvort maður er rétti aðilinn í verkið. Því þetta er alltaf persónulegt og maður gefur sig allan í þetta. Þegar maður er búinn að skila af sér verki þá er stundum allur vindur úr manni,“ segir Birna.

Mynd/Studiostudio

Jákvæð þróun

Þeim fannst áhugavert að takast á við að hanna nýtt útlit fyrir HönnunarMars. Í hönnuninni tóku þau tillit til þess að hátíðin er bæði fyrir fagfólk og áhugafólk um hönnun.

„Þetta er þannig verkefni að það er eðlilegt að það sé rótering á þessu. Við höldum samt í ákveðna þræði sem er búið að leggja undanfarin 10 ár. Þetta snýst ekki endilega um að finna upp hjólið heldur byggja ofan á þá þekkingu sem er komin.

„Já, það er mikilvægt að fólk finni fyrir því að þetta sé hátíð sem er alltaf í þróun. Og það þarf að tala bæði til hönnuða og líka þeirra sem hafa áhuga á hönnun, eru forvitnir og áhugasamir,“ segir Birna.

Þau eru sammála um að hönnun hafi sífellt meira vægi í íslenskri menningu.

„Það er mjög jákvæð þróun í gangi. Fólk sér mikilvægið og sérstöðuna. Frá því að ég fór að velta hönnun fyrir mér finnst mér landslagið hafa breyst,“ segir Birna.

„Margir eru að gera virkilega spennandi hluti,“ segir Arnar.

„Það er til dæmis mikið af sjálf­sprottnum verkefnum og mikil flóra. Mjög fjölbreytt stemming,“ segir Birna.

Og hefur orðstírinn aukist? Út á við?

„Þegar við erum að vinna erlend verkefni líður manni stundum eins og það sé verið að sækja vatnið yfir lækinn. En kannski höfum við eitthvað annað fram að færa sem skiptir máli. Einhverja aðra sýn,“ segir Arnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×