Viðskipti innlent

Berg­þóra og Karl nýir for­stöðu­menn hjá Ís­lands­stofu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Karl Guðmundsson og Bergþóra Halldórsdóttir.
Karl Guðmundsson og Bergþóra Halldórsdóttir.
Íslandsstofa hefur ráðið tvo forstöðumenn sem taka við nýjum sviðum í kjölfar skipulagsbreytinga. Bergþóra Halldórsdóttir mun stýra nýju sviði viðskiptaþróunar og Karl Guðmundsson stýrir sviði útflutnings.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Íslandsstofu en þar kemur fram að Bergþóra komi til Íslandsstofu frá Samtökum atvinnulífsins (SA) þar sem hún hefur sinnt alþjóðasamstarfi fyrir hönd samtakanna og umbótum á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja undanfarin ár.

Bergþóra er með meistaragráðu í alþjóðalögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og þá hefur hún lokið viðbótargráðum í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands og frönsku frá háskólanum í Aix-Marseille.

„Nýtt svið viðskiptaþróunar mun þróa þjónustu Íslandsstofu við allar atvinnugreinar og fyrirtæki. Innan viðskiptaþróunar verður einnig byggð upp greiningareining sem mun sinna greiningum fyrir öll svið Íslandsstofu og eiga náið samstarf við stjórnsýsluna og atvinnulífið um greiningar og undirbúning stefnumótandi verkefna. Þá mun viðskiptaþróun bera ábyrgð á stefnumótun Íslandsstofu og innleiðingu stefnu,“ segir í tilkynningu.

Karl kemur svo til Íslandsstofu frá lyfjafyrirtækinu Florealis þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs. Hann er með MBA-gráðu frá Rady School of Management, UCSD, og þá er hann með B.Sc.-gráðu í sjúkraþjálfun.

„Hlutverk útflutningssviðs er að auka eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu hjá öllum útflutningsgreinum og greiða fyrir markaðssetningu og útflutningi, hvort sem er á vörum eða þjónustu og á sviði skapandi greina.

Sviðið vinnur náið með atvinnulífinu og stjórnvöldum við að móta verkefni, kortleggja markaði, greina tækifæri og móta skilaboð út á markaði. Innan sviðsins eru þarfir og möguleikar hverrar útflutningsgreinar skoðaðar sem og mögulegar aðgerðir varðandi erlent markaðsstarf og hvernig Íslandsstofa getur stutt við þær,“ segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×