Erlent

Tilbúnir að sleppa flugmanninum dragi það úr spennu

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá mótmælum gegn Indverjum í Quetta í Pakistan. Á borðanum stendur: Her Pakistan sækið fram, þjóðin stendur við bak ykkar.
Frá mótmælum gegn Indverjum í Quetta í Pakistan. Á borðanum stendur: Her Pakistan sækið fram, þjóðin stendur við bak ykkar. AP/Arshad Butt
Yfirvöld Pakistan segjast tilbúin til að sleppa indverskum flugmanni sem skotinn var niður yfir Kasmírhéraði úr haldi. Flugmaðurinn heitir Abhinandan og var skotinn niður eftir loftárás sem Indverjar segja að hafi beinst gegn hryðjuverkasamtökum sem hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem 40 indverskir hermenn féllu í. Pakistanar segja Abhinandan í góðu ástandi og vel sé komið fram við hann.

Þrátt fyrir það höfðu yfirvöld Pakistan birt myndband og myndi af Abhinandan þar sem hann var með bundið fyrir augun og það blæddi úr andliti hans.

Flugmaðurinn indverski sem sagður er heita Abhinandan.AP/Her Pakistan
Indverjar hafa fordæmt myndefnið og segja það lágkúrulegt og ljóst sé að Abhinandan hafi verið slasaður og segja myndefnið vera brot á alþjóðalögum og Genfarsáttmálanum. Þeir hafa krafist þess að flugmanninum verði sleppt úr haldi og ríkisstjórn Imran Khan, forsætisráðherra Pakistan, lýsti því yfir í morgun að það kæmi til greina, ef það myndi draga úr spennu á milli kjarnorkuveldanna tveggja.

Sjá einnig: Pakistanar kalla eftir viðræðum



Yfirvöld bæði Indlands og Pakistan segjast hafa skotið niður orrustuþotu hins ríkisins og segjast Pakistanar jafnvel hafa skotið tvær niður en enn sem komið er viðurkenna Indverjar einir að hafa tapað þotu.

Indland og Pakistan hafa háð þrjár styrjaldir frá því Bretar yfirgáfu svæðið og skiptu ríkjunum upp eftir trúarbrögðum heimamanna árið 1947. Af þeim hafa tvær snúist um Kasmír, sem bæði ríkin gera tilkall til en stjórna sitthvorum hluta héraðsins.

Undanfarna daga hafa forsvarsmenn beggja ríkja fyrirskipað loftárásir og hersveitir þeirra hafa skipst á skotum víða á landamærum ríkjanna.

 


Tengdar fréttir

Herþotum grandað

Pakistanar segjast hafa skotið niður tvær indverskar herflugvélar. Indverjar segja flugvélina hafa verið eina. Áratugalöng deila ríkjanna hefur stigmagnast og valdamestu ríki heims hvetja til stillingar og viðræðna þeirra á milli.

Skutu niður tvær indverskar herþotur

Pakistanar fullyrða að þeir hafi í morgun skotið niður tvær indverskar herþotur í lofthelgi sinni í Kashmírhéraði í morgun.

Pakistanar kalla eftir viðræðum

„Sagan segir okkur að stríð sé full af misreikningum. Mín spurning er þessi: Miðað við þau vopn sem við eigum, höfum við efni á því að misreikna okkur? Við ættum að setjast niður og tala saman.“

Dökkar horfur vegna Kasmírárásar

Indverjar segjast hafa ráðist á þjálfunarbúðir hryðjuverkasamtakanna JeM í Pakistan og fellt 350 eftir árás JeM í Pulwama. Pakistanar segja það tilbúning og hyggjast svara árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×