Innlent

31 sótti um em­bætti skrif­stofu­stjóra í fé­lags­mála­ráðu­neytinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Um er að ræða þrjár stöður skrifstofustjóra í ráðuneytinu.
Um er að ræða þrjár stöður skrifstofustjóra í ráðuneytinu. félagsmálaráðuneytið
Alls sótti 31 einstaklingur um embætti skrifstofustjóra á þremur skrifstofum félagsmálaráðuneytisins en umsóknarfrestur rann út 18. febrúar síðastliðinn.

Skrifstofurnar þrjár eru skrifstofa barna- og fjölskyldumála, skrifstofa húsnæðis- og lífeyrismála og skrifstofa vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, muni meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Umsækjendurnir eru eftirfarandi:

•    Arna Þórdís Árnadóttir, fulltrúi

•    Ágúst Þór Sigurðsson, settur skrifstofustjóri

•    Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri

•    Ásthildur Knútsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra

•    Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur

•    Bjarnheiður Gautadóttir, settur skrifstofustjóri

•    Björg Kjartansdóttir, sviðsstjóri

•    Erna Kristín Blöndal, verkefnastjóri

•    Eyþór Benediktsson, sérfræðingur

•    Gerður Ríkharðsdóttir, rekstrarráðgjafi

•    Gunnhildur Gunnarsdóttir, lögfræðingur

•    Hanna Lára Steinsson, félagsráðgjafi

•    Haukur Eggertsson, iðnaðarverkfræðingur

•    Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, árangursstjóri

•    Ingvar Sverrisson, lögfræðingur

•    Jónína Margrét Sigurðardóttir, uppeldis- og meðferðarfulltrúi

•    Kristian Guttesen, doktorsnemi

•    Kristín Jónsdóttir, félagsráðgjafi

•    Lísa Margrét Sigurðardóttir, lögfræðingur

•    María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi

•    Pétur T. Gunnarsson, verkefnastjóri

•    Ragna María Ragnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

•    Ragnhildur Ísaksdóttir, starfsmannastjóri

•    Sigurrós Ásgerður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri

•    Skúli Þórðarson, fyrrum sveitarstjóri

•    Steinunn Jóhanna Bergmann, sérfræðingur

•    Sunna Arnardóttir, sérfræðingur

•    Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri

•    Veturliði Þór Stefánsson, lögfræðingur

•    Vilhjálmur Bergs, lögfræði- og fjármögnunarráðgjafi

•    Þórunn Oddný Steinsdóttir, lögfræðingur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×