Lífið

„Beikon er ofmetnasta sjitt í heimi“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Króli hefur ekki borðað kjöt í eitt ár.
Króli hefur ekki borðað kjöt í eitt ár.
„Eftir að hafa ekki borðað kjöt núna í tæpt ár get ég með sanni sagt: beikon er ofmetnasta sjitt í heimi, takk fyrir.“

Þetta segir rapparinn vinsæli Kristinn Óli Haraldsson betur þekktur sem Króli á Twitter.

Færslan kom inn í gærmorgun og þegar þessi grein er skrifuð hefur verið líkað við hana um 250 sinnum.

Einn fylgjandi Króla segir til að mynda við færsluna: „Beikon er viðbjóður,“ og er Króli greinilega ekki einn um þessa skoðun en beikon er gríðarlega vinsæl kjötafurð um heim allan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×