Innlent

Ráðist í stóra úttekt á myglu í Fossvogsskóla

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/hanna

Veikindi nokkurra barna í Fossvogsskóla í vetur eru af foreldrunum rakin til myglu í skólabyggingunni. Verkfræðistofan Mannvit sem tók sýni í haust sagði rakaskemmdir í húsnæðinu einhverjar en ekki miklar.



Eftir að fimm ryksýni og eitt efnissýni voru tekin í Fossvogsskóla 20. og 21. september og niðurstöður rannsóknar lágu fyrir var ráðist í alþrif á húsnæðinu í desember samkvæmt ráðleggingum frá umhverfis- og skipulagssviði og skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.



Einn nemandi mun hafa verið mjög mikið frá vegna veikinda sem myglunni er kennt um og fleiri börn munu hafa fundið til verulegra óþæginda og verið slöpp.



Blaðamaður náði ekki tali af Aðalbjörgu Ingadóttur, skólastjóra Fossvogsskóla, í gær en í tölvupósti hennar til foreldra fyrir viku er farið yfir stöðuna. Foreldri barns sem sýnt hafi einkenni sem rekja megi til lélegra loftgæða ásamt foreldri annars barns í skólanum gagnrýni túlkun Mannvits á greiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á sýnunum og sömuleiðis aðgerðirnar í kjölfarið. Telji þeir að í sýnunum sé að finna merki um að húsnæðið sé ekki laust við rakaskemmdir og myglu.



„Foreldri barnsins telur að Mannvit mistúlki niðurstöður NÍ og að sýnin sem tekin voru gefi ekki raunsanna mynd af loftgæðum í húsnæðinu,“ segir í pósti skólastjórans sem boðar nýja úttekt í öllum skólanum.



„Skólaráð er vel upplýst um alla málavöxtu og lítur málið alvarlegum augum,“ skrifar Aðalbjörg foreldrunum. „Skólaráð væntir þess að fá svör sem allra fyrst um að fyrirhugaðar mælingar á loftgæðum sem gera á á næstunni verði gerðar með ítarlegum hætti þannig að þær gefi raunsanna mynd af loftgæðum í skólahúsnæðinu svo að ekki leiki vafi á því hvort um rakaskemmdir eða myglu er að ræða.“ Fréttablaðið vildi í gær fá að mynda inni í Fossvogsskóla, meðal annars á kaffistofu kennara þar sem rakablettir eru í loftklæðningu. Ljósmyndari hitti þá fyrir Aðalbjörgu skólastjóra sem leyfði ekki myndatökur á meðan málið væri enn í skoðun.



Nýtt vinnulag vegna rakaskemmda var kynnt í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur á þriðjudag. Bókaði áheyrnarfulltrúi framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva að þeir fögnuðu því að verklagsreglur vegna myglu verði að veruleika. Skort hafi á mat, eftirfylgni og framkvæmd hjá borginni í þessum efnum.



„Í dag er húsnæði þriggja frístundamiðstöðva óhæft til notkunar vegna myglu og er óvissa um fjórðu frístundamiðstöðina. Fyrir liggja óskir framkvæmdastjóra frístundamiðstöðva um að flýta fyrir að viðeigandi lausnir finnist á húsnæðisvanda frístundamiðstöðvanna, óskir þess efnis hafa því miður ekki komist í ferli þrátt fyrir ítrekaðar óskir,“ bókaði áheyrnarfulltrúinn. gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×