Viðskipti innlent

Anna Björg nýr fram­kvæmda­stjóri Strandagaldurs

Atli Ísleifsson skrifar
Anna Björg Þórarinsdóttir.
Anna Björg Þórarinsdóttir. Mynd/Strandagaldur
Anna Björg Þórarinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Strandagaldurs sem stendur á bak við uppbyggingu og rekstur Galdrasýningar á Hólmavík á Ströndum.

Anna Björg tekur við stöðunni af Sigurði Atlasyni sem varð bráðkvaddur í nóvember, 57 ára að aldri. Hann hafði staðið að safninu í tæpa tvo áratugi.

Í tilkynningu frá Strandagaldri segir að Anna Björg sé með háskólapróf í ferðamálafræði og þýsku frá Háskóla Íslands og skrifaði á sínum tíma lokaverkefni sitt um þróun og starfsemi Strandagaldurs.

„Síðar starfaði Anna Björg um tíma á Galdrasýningunni og Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík sem hefur síðustu árin verið samstarfsverkefni Strandagaldurs og sveitarfélagsins Strandabyggðar. Hún hefur því bæði reynslu og þekkingu á starfseminni. Að auki hefur Anna Björg fjölbreytta reynslu á sviði ferðamála og er menntaður leiðsögumaður.

Það er stjórn Strandagaldurs mikið gleðiefni að tilkynna um ráðningu Önnu Bjargar og bjóða hana velkomna til starfa. Á stjórnarfundinum á laugardaginn varð einnig sú breyting á stjórn Strandagaldurs að Jón Jónsson þjóðfræðingur tók við sem stjórnarformaður af Magnúsi Rafnssyni sagnfræðingi sem hefur staðið við stjórnvölinn í fjölda ára. Stjórn Strandagaldurs skipa Jón Jónsson, Magnús Rafnsson, Ólafur Ingimundarson, Þórunn Einarsdóttir og Valgeir Benediktsson,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Sigurður Atlason fallinn frá

Sigurður Atlason, framkvæmdastjóri Galdrasafnsins á Hólmavík, er látinn 57 ára gamall en hann varð bráðkvaddur þann 20. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×