Innlent

Neytendastofa hefur sett sölubann á þrjú hundruð tegundir af rafrettuvökva

Nadine Guðrún Yaghi skrifar

Neytendastofa hefur sett sölubann á þrjú hundruð tegundir af rafrettuvökvum frá því að lög um rafrettur tóku gildi fyrr á árinu.

Talið er að enn sé mikið af vökva á markaðnum sem ekki hafi fengist leyfi fyrir.



Frá því að lög um rafrettur og áfyllingar tóku gildi í mars má ekki selja rafrettur og áfyllingar sem innihalda nikótín, nema að fengist hafi leyfi hjá Neytendastofu. Stofnunin fer með eftirlit með lögunum, meðal annars því hvort vörurnar uppfylli öryggiskröfur.



„Við höfum verið að fara á sölustaði þar sem vörur eru í ólagi . Þá höfum við verið að setja tímabundið sölubann og fjarlægt vörur ur versluneða innsiglað í verslun og tekið sýnishorn,“ segir Skarphéðinn Grétarsson, sérfræðingur hjá Neytendastofu. 



Sölubann hafi verið sett 300 mismundandi tegundir af rafrettuvökvum á síðustu sjö mánuðum. Þar af eru vörur með umbúðum sem höfða til barna og áfyllingar sem innihalda of hátt hlutfall nikótíns. 



„og einhverjar vörur sem eiga að vera nikotínlausar og það hafa verið rofin innsiglin og í svoleiðis vörum er grunur um að það hafi verið blandað í þær nikótíni. Við hugsum líka hver myndi kaupa gos sem væri búið að opna,“ segir Skarphéðinn.



Hann segist oft hafa orðið var við það í eftirlitsferðum að rafrettuvökvar séu til sölu í verslunum, þrátt fyrir að ekki hafi fengiðst leyfi fyrir þeim. Þannig séu ólöglegar vörur á markaði sem óvíst er hvort uppfylli skilyrði laga. Það sé aðeins einn starfsmaður í fullu starfi við eftirlitið og því ekki hægt að sinna því til fulls.



„Miðað við stöðuna í dag og þetta aukna álag þá þyrfti auka stöðugildi bara í rafretturnar. Þetta var meira en gert var ráð fyrir í upphafi og þetta eru líka rosalega margir söluaðilar um allt land,“ segir Skarphéðinn.



Þá hafi Neytendastofa fengið ábendingar um að söluaðilar selji börnum rafrettur. „Við lítum það mjög alvarlegum augum þegar söluaðilar eru að selja börnum rafrettur og áfyllingar, hvað þá ef það inniheldur nikótín,“ segir Skarphéðinn.



Heilt yfir sé lögunum ekki fylgt nægilega. „Þau eru ný ennþá en það er liðinn það langur tími þannig okkur finnst að söluaðilar ættu a vera farnir að fylgja þeim betur en þeir gera í dag,“ segir Skarphéðinn.


Tengdar fréttir

Vill takmarka bragðefni og umbúðir sem höfða til barna

Landlæknir vill að heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir því að takmarka bragðefni og umbúðir á rafrettuvökva sem sérstaklega höfða til barna. Síðasta hálfa árið hafa hátt í þúsund tegundir af vökva verið skráðar hér á landi. Þá er kannabissvökvi í rafrettur auglýstur í stórum stíl á snjallforriti þar sem fíkniefni eru boðin til sölu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×