Innlent

Sunnlensk hross dópuð af kannabis

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Sunnlensk hross. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Sunnlensk hross. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Fréttablaðið/pjetur
Undarleg hegðun nokkurra hrossa á Suðurlandi hratt af stað rannsókn hjá MAST fyrir nokkrum árum. Þau titruðu en höfðu góða matarlyst. Eftir fyrirspurnir til bandarískra lækna kom í ljós að hrossin höfðu innbyrt kannabisplöntur.

Málið kom upp í tíð Katrínar Andrésdóttur, héraðsdýralæknis Suðurlands, en hún lét af embætti árið 2011. Katrín staðfestir að þessi grunur hafi komið upp á sínum tíma en vildi ekki frekar tjá sig um málið. Sigríður Björnsdóttir hjá MAST, sem er sérfræðingur í hrossasjúkdómum, segir einnig að það hafi verið grunur um þetta á sínum tíma.

Mia Hellsten dýralæknir kom að málinu fyrir röð tilviljana en umræddir hestar voru ekki í eigu hennar skjólstæðinga. „Það var verið að skoða hvað væri að þessum hestum“ segir Mia. „Þarna lék grunur á að um væri að ræða nýjan taugasjúkdóm.“

Helstu einkennin hjá hestunum voru ósamræmdar hreyfingar. Þeir voru titrandi og með mjög óeðlilegan gang en samt ekki veiklulegir eða með hita.

Mia hafði samband við félag hestadýralækna í Bandaríkjunum, sem heitir AAEP. Á opnum vettvangi þar sendi hún lýsingu á einkennum og myndband af hestunum.

„Það komu fram alls kyns tilgátur um taugasjúkdóma. Loks sagði einn að þetta líktist hundi sem hann fékk inn á stofuna hjá sér, og hafði komist í kannabiskökur eigandans. Þegar prófanir voru gerðar á hestunum kom jákvætt út úr kannabisprófinu.“

Ekki var farið lengra með málið en talið var líklegt að hestarnir hefðu komist í haug þar sem kannabisplöntur voru. Hversu mikið er ekki vitað, en að minnsta kosti nóg til að gera nokkra hesta vel freðna.

Mia segir að hrossunum hafi ekki orðið varanlega meint af.

„Þeim sem voru að skoða þetta fannst einmitt mjög skrýtið að þó þeir væru með svona mikil einkenni þá höfðu þeir góða matarlyst.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×