Viðskipti innlent

Selur í Högum og kaupir í Skeljungi

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Ingibjörg Pálmadóttir, fjárfestir, og eiginmaður hennar Jón Ásgeir Jóhannesson.
Ingibjörg Pálmadóttir, fjárfestir, og eiginmaður hennar Jón Ásgeir Jóhannesson. VÍSIR/VILHELM
Félagið 365 miðlar, sem er í eigu Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, er komið með 7,67 prósenta hlut í Skeljungi. Markaðsvirði hlutarins nemur um 1.300 milljónum króna.

Á sama tíma hefur félagið minnkað við hlut sinn í Högum en það átti rúmlega fjögurra prósenta hlut í smásölurisanum í byrjun ársins. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að félagið sé komið yfir fimm prósenta hlut í Skeljungi.

Jón Skaftason, framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá 365 miðlum, segir félagið telja Skeljung vera gott fjárfestingatækifæri.

„Félagið er sterkt og vel rekið, og á meðal annars safn af einkar vel staðsettum fasteignum. Þá er Skeljungur einstakt að því leyti að drjúgur hluti tekna félagsins kemur frá erlendum rekstri, og hefur það því aðgang að mun betri fjármögnunarkjörum en almennt bjóðast á Íslandi,“ segir Jón.

365 miðlar eru orðnir næststærsti hluthafinn í Skeljungi og langsamlega stærsti einkafjárfestirinn. Markaðsvirði Skeljungs er um 16.850 milljónir króna og nemur því hlutur félagsins tæpum 1,3 milljörðum króna.

Eignarhlutur félagsins er meðal annars í gegnum fjármögnun hjá Kviku banka.

Hvað Haga varðar segir Jón að 365 miðlar séu enn á meðal stærstu einkafjárfestanna í smásölurisanum. „Það liggur fyrir að mikil tækifæri eru til hagræðingar á smásölumarkaðnum almennt.“

Skeljungur hefur hækkað um 1,29 prósent í 395 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni um miðjan dag í gær.

Ingibjörg Stefanía er, sem áður segir, aðaleigandi 365 miðla, sem eiga Torg, útgáfufélag Fréttablaðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×