Innlent

Gul við­vörun og hring­veginum lokað

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Viðvörunin gildir fyrir Suður- og Suðausturland.
Viðvörunin gildir fyrir Suður- og Suðausturland. veðurstofa íslands
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar hefur þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum verið lokað fyrir allri umferð sem og veginum í Öræfum, milli Núpsstaðar og Jökulsárslóns. Stormur gengur nú yfir suðaustan- og sunnanvert landið og geta hviður farið upp í allt að 50 metra á sekúndu við fjöll.

 

Samkvæmt vef Veðurstofunnar verður hvassast undir Eyjafjöllum austur í Mýrdal og í Öræfum, en gul viðvörun er í gildi fyrir Suður- og Suðausturland.

Á vef Vegagerðarinnar var sett tilkynning í gærkvöldi þess efnis að vegum yrði líklega lokað nú í morgunsárið vegna veðurs, það er veginum á Skeiðarársandi og að Jökulsárlóni og undir Eyjafjöllum.

Að því er segir á vef Veðurstofunnar má búast við talsverðri rigningu samhliða vindinum á Suðausturlandi, rigningu eða slyddu á Austfjörðum, snjókomu og skafrenning norðaustan til en úrkomulítið í öðrum landshlutum.

Í kvöld mun svo draga úr vindi og úrkomu um landið sunnanvert en áfram verður hvasst á norðanverðu landinu á morgun og einna hvassast á Vestfjörðum.

Veðurhorfur á landinu:

Vaxandi austanátt, 15 til 25 m/s undir hádegi, hvassast syðst. Talsverð rigning SA-til, rigning eða slydda A-ast og snjókoma NA-lands, annars úrkomulítið. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu á S-verðu landinu í kvöld. Hiti yfirleitt 1 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan.

Dregur úr vindi á morgun, norðaustan 10-18 síðdegis, en mun hægari S-til. Slydda eða snjókoma á köflum fyrir norðan, en lengst af þurrt syðra. Hiti 0 til 5 stig, en víða vægt frost til landsins.

Á föstudag:

Norðaustan 10-18 m/s, hvassast NV-til. Slydda eða snjókoma um landið norðanvert, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt syðra. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins.

Á laugardag:

Austlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðst. Dálítil él á N-verðu landinu, en slydda eða rigning með köflum syðra fram eftir degi, en lægir og léttir til um kvöldið. Kólnandi veður.

Á sunnudag:

Austlæg eða breytileg átt, yfirleitt hæg. Bjartviðri og kalt, en skýjað V-lands og líkur á snjókomu þar um kvöldið. Frost víða 3 til 10 stig, en frostlaust við S-ströndina.

Fréttin var uppfærð klukkan 08:58 þegar hringveginum hafði verið lokað í Öræfum.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×