Innlent

FabLab smiðja opnuð á Selfossi

FabLab Selfoss er til húsa í Hamri, verknámshúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands.
FabLab Selfoss er til húsa í Hamri, verknámshúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands. Magnús Hlynur
Áttunda FabLab smiðja landsins hefur verið opnuð í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Um er að ræða stafræna smiðju með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er, auk þess sem smiðjunni er ætlað að auka áhuga á verk- og tækninámi í grunn- og framhaldsskólum landsins.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sveitarstjórnarmála mætti nýlega á Selfoss í verknámshúsið Hamar í Fjölbrautaskóla Suðurlands og opnaði Fablab smiðjuna formlega að viðstöddum fjölda gesta. FabLab Selfoss er samstarfsverkefni Héraðsnefndar Árnesinga, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Háskólafélags Suðurlands, Atorku – félags atvinnurekenda á Suðurlandi og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. 

 

 

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sveitarstjórnarmála, ásamt hluta af gestum sem voru viðstaddir opnun FabLab smiðjunnar á Selfossi.Magnús Hlynur
„Á Selfossi var verið að opna nýja smiðju þar sem það er verið að þjálfa ungt fólk og fólk í rauninni á öllum aldri til þess að nýta stafræna framleiðslutækni, ýmiskonar tvívíddar hönnun eða þrívíddarhönnun og læra forritun, auk þess að raun gera hugmyndir sínar“, segir Frosti Gíslason verkefnisstjóri FabLab Ísland hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

 

Frosti segir að tilgangur smiðjanna um allt sé að hver sem er geti framkallað hugmyndir sínar, þar að segja að skapa raunverulega ný atvinnutækifæri og gera okkur samkeppnishæfari, bæði sem nemendur, starfsmenn og sem staði og þjóð, gera okkur samkeppnishæfari við önnur lönd.

 

FabLab smiðjan á Selfossi er sú áttunda í landinu en alls erum um fimmtán hundruð FabLab smiðjur í heiminum sem vinna saman og deila þekkingu á milli staða.



Sigurður Ingi er ánægður með smiðjuna á Selfossi.

 

„Og ég er sannfærður um að það verði ekki langt að bíða að FabLabið sanni gildi sitt hér og reyndar lít ég svo á að það hafi þegar gert það bara að það sé komið“, segir Sigurður Ingi.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×