Viðskipti erlent

Dalurinn veikist

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þrátt fyrir að dalurinn hafi veikst taka markaðir úrslitum næturinnar fagnandi.
Þrátt fyrir að dalurinn hafi veikst taka markaðir úrslitum næturinnar fagnandi. Getty/Classen Rafael
Bandaríkjadalurinn hefur lækkað frá opnun markaða í morgun. Nú á ellefta tímanum hefur lækkunin numið um 0,6% og stendur dalurinn því í um 120 krónum. Þrátt fyrir hóflega lækkun hefur gengi dalsins ekki verið veikara í næstum tvær vikur.

Lækkunina má rekja beint til úrslita þingkosninga í Bandaríkjunum, þar sem demókratar öðluðust meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.

Greinendur vestanhafs telja að aukin ítök demókrata geti orðið til þess að torvelda innreið ýmissa „Trump-ískra“ efnahagsaðgerða; eins og frekari skattabreytinga eða stórfelldrar innviðauppbyggingar. Það er þó ekki útilokað að þeim verði hrint í framkvæmd en búast má við að aðgerðirnar muni taka einhverjum, jafnvel umfangsmiklum breytingum í meðförum þings sem lýtur stjórn Demókrataflokksins.

Það geti orðið til þess að hægja á vexti hagkerfisins vestanhafs, sem mun um leið draga úr þrýstingnum á Seðlabanka Bandaríkjanna að hækka stýrivexti. Bandaríkjaforseti hefur opinberlega gagnrýnt peningastefnunefnd bankans fyrir stýrivaxtahækkanir ársins, sem nema alls um 0.5 prósentustigum. Það telst til tíðinda að forseti Bandaríkjanna segi Seðlabankanum til syndanna, enda leiddi til það til skjálfta á mörkuðum.

Þrátt fyrir lækkun dalsins hafa markaðir tekið tíðindum næturinnar fagnandi. Merkja má hækkanir á mörkuðum í Evrópu sem einna helst eru drifnar áfram af fyrirtækjum sem njóta góðs af veikari bandaríkjadal. Má í því samhengi nefna Rio Tinto og námurisann BHP Billiton sem hækkað hafa um ríflega 3% í kauphöllinni í Lundúnum.

Þetta hefur jafnframt skilað sér í styrkingu evrópskra gjaldmiðla, en hækkunin það sem af er degi er þó ekki mikil.


Tengdar fréttir

Miklar lækkanir á mörkuðum

Miklar lækkanir hafa orðið á mörkuðum um allan heim eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stýrivaxtahækkanir Seðlabanka Bandaríkjanna væru brjálaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×