Viðskipti erlent

Uppljóstrarinn í HSBC fyrir dómara vegna mögulegs framsals

Kjartan Kjartansson skrifar
Falciani starfaði í tölvudeild HSBC en hann afhenti frönskum yfirvöldum gögn um fjölda viðskiptavina bankans árið 2008.
Falciani starfaði í tölvudeild HSBC en hann afhenti frönskum yfirvöldum gögn um fjölda viðskiptavina bankans árið 2008. Vísir/EPA
Herve Falciani, fyrrverandi starfsmaður svissneska bankans HSBC, sem ljóstraði upp um umfangsmikil skattaundanskot viðskiptavina, kemur fyrir dómara á Spáni sem tekur afstöðu til þess að hvort að hann verði framseldur til Sviss í dag.

Svissnesk yfirvöld saka Falciani um iðnaðarnjósnir og var hann dæmdur í fimm ára fangelsi þar að honum fjarstöddum. Hann lak trúnaðarskjölum innan úr bankanum árið 2008 sem sýndu fram á að þúsundir viðskiptavina bankans höfðu skotið fé undan skattayfirvöldum í heimalöndum sínum.

Lekinn varð upphafið að rannsóknum í nokkrum löndum. HSBC var meðal annars rannsakaður vegna gruns um að bankinn hefði aðstoðað við skattaundanskotin.

Reuters-fréttastofan segir að ekki sé ljóst hvenær dómari úrskurðar um hvort að Falciani skuli framseldur. Það gæti þó gerst strax í dag. Falciani var handtekinn í Madrid í apríl þegar hann hugðist halda erindi á ráðstefnu um uppljóstrara þar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×