Innlent

Útgjöld ríkissjóðs aukast um 55 milljarða á næsta ári

Heimir Már Pétursson skrifar
Útgjöld ríkissjóðs aukast um fimmtíu og fimm milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem lagt var fram á Alþingi í dag. Mest munar um aukin framlög til heilbrigðismála upp á 12,6 milljarða.

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 29 milljarða króna afgangi á næsta ári eða sem nemur einu prósenti af vergri landsframleiðslu. Það er minnsti afgangur fjárlaga samkvæmt markmiðum í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til fimm ára.

Gert er ráð fyrir 29 milljarða króna afgangi.Mynd/Stöð 2
Á kynningarfundi Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra í dag kom fram að heildartekjur ríkissjóðs séu áætlaðar 891,6 milljarðar og útgjöldin 862,7 milljarðar á næsta ári. Útgjöld milli ára aukast um 55 milljarða eða 7 prósent og tekjurnar aukast um aðeins minni fjárhæð. Útgjöld til heilbrigðismála aukast um 12,6 milljarða að frátöldum launa- og verðlagshækkunum, þar af fara 7,2 milljarðar til byggingaframkvæmda á nýjum Landsspítala.

Hvernig mun hinn almenni borgari finna fyrir þeim breytingum sem fram koma í fjárlagafrumvarpinu?

„Vonandi með því að við höldum áfram þeim stöðugleika sem hér hefur verið. Við erum sömuleiðis að létta álögum, styðja betur við barnafjölskyldur í landinu. Við hækkum persónuafsláttinn með sérstakri hækkun. Þannig að það skilar sér í auknu mæli til tekju lágra þótt ekki sé um verulega hækkun á persónuafslættinum að ræða en engu að síður mikilvæga,“ segir Bjarni.

Mynd/Stöð 2
Samkvæmt lögum hefði persónuafslátturinn átt að hækka um þrjú prósent en hann verður hækkaður um fjögur prósent. Bjarni nefnir líka átak í samgöngumálum og fleiri stór verkefni.

„Við erum að fjármagna átak í geðheilbrigðismálum, við förum í ýmsar framkvæmdir sem við höfum þurft að láta sitja á hakanum á undanförnum árum. Eins og einstakar byggingar, til dæmis Hús íslenskunnar. Landhelgisgæslan sér nú fram á að geta farið að fá nýjar þyrlur. Það eru mörg slík verkefni sem við erum að klára í þessum fjárlögum,“ segir Bjarni. Fjármálaráðherra segir skipta miklu máli að tekist hafi að lækka skuldir ríkissjóðs mikið á undanförnum árum en þær hafa lækkað um 658 milljarða frá árinu 2011 eða úr 86 prósentum af landsframleiðslu í 31 prósent á þessu ári. Þar með hafi vaxtagreiðslur lækkað um 40 milljarða á ári.

Ríkisstjórnin hafi þegar komið til móts við verkalýðshreyfinguna á þessu ári og geri það áfram í fjárlögum næsta árs til að mynda með auknum stuðningi við barnafjölskyldur. Þá lækkar tryggingagjald á fyrirtæki um 8 milljarða í áföngum á næsta og þar næsta ári.



Mynd/Stöð 2
Hvað myndir þú segja að einkenndi þessi fjárlög í heild sinni?

„Þessi fjárlög eru sókn til bætra lífskjara á mjög traustum grunni. Við erum að ná skuldaviðmiðinu í fyrsta sinn frá því lög um opinber fjármál voru sett. það er að segja 30 prósenta viðmiðinu og við erum að gera betur á öllum sviðum samfélagsins. Við erum að styðja við betra líf á landinu,“ segir Bjarni Benediktsson.


Tengdar fréttir

Stefnt að 29 milljarða króna afgangi

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2019 gerir ráð fyrir afgangur á heildarafkomu ríkissjóðs verði eitt prósent af vergri landsframleiðslu árið 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×