Fótbolti

Guðni kallar eftir „skilningi og þolinmæði“ eftir tvö stór töp í fyrstu leikjum Hamrén

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðni Bergsson réð Erik Hamrén sem eftirmann Heimis Hallgrímssonar.
Guðni Bergsson réð Erik Hamrén sem eftirmann Heimis Hallgrímssonar. vísir/vilhelm
Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, kallar eftir því að Erik Hamrén og karlalandsliðinu í fótbolta sé sýndur skilningur og þolinmæði eftir tvo fyrstu leiki Svíans sem hafa ekki farið vel.

Hann viðurkennir að frammistaðan í 6-0 tapinu á móti Sviss hafi ekki verið ásættanleg en að allt annað hafi verið uppi á teningnum á móti Belgíu í gærkvöldi sem hann bendir réttilega á að er eitt besta landslið heims.

Strákarnir okkar töpuðu fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Eriks Hamrén með markatölunni 9-0 eftir 6-0 tap í Sviss og svo 3-0 tap á Laugardalsvellinum í gær.

Tapið ytra var það stærsta hjá íslenska landsliðinu í 17 ár en tapið í gær var það stærsta í mótsleik í fjórtán ár eða síðan Lars Lagerbäck mætti hingað með Svíþjóð og lagði Íslendinga, 4-1.

„Sýnum skilning og þolinmæði. Frammistaðan var ekki ásættanleg gegn Sviss en mun betri gegn Belgíu. Einu besta landsliði heims.Meiðsli hrjá okkur en við munum koma sterkir til baka. Stöndum þétt saman,“ segir Guðni á Twitter-síðu sinni í morgun.

Strákarnir eru í slæmri stöðu í Þjóðadeildinni en liðið á eftir heimaleik gegn Sviss og útileik gegn Beglíu. Líkurnar á að íslenska liðið haldi sæti sínu í A-deildinni eftir töpin tvö eru því miður ekki miklar.


Tengdar fréttir

Rúnar Már: Aldrei ásættanlegt að tapa

Rúnar Már Sigurjónsson var besti leikmaður Íslands í tapinu fyrir Belgum á Laugardalsvelli í kvöld. Rúnar kom aftur inn í landsliðshópinn fyrir þessa tvo leiki gegn Sviss og Belgíu og nýtti sénsinn vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×