Skoðun

Andi Einars Ben svífi yfir hreinum ströndum

Árni Snævarr skrifar
Ísland tekur þátt í stærsta hreinsunarátaki sem dæmi eru um í heiminum „Alþjóðlega hreinsunardeginum“ laugardaginn 15. september 2018. Hreinsum Ísland, með Bláa herinn og Landvernd í broddi fylkingar, taka þátt í alheimsátakinu og verða Tómas Knútsson og hans fólk við hreinsunarstörf á Víðisandi í Ölfusi við Hlíðarvatn á laugardaginn. Tómas og Blái herinn hreinsuðu á dögunum Herdísarvík og nú er sem sagt haldið áfram í næsta nágrenni við síðasta heimili þjóðskáldsins Einars Benediktssonar.

„Andi Einars Ben getur þá svifið yfir hreinum ströndum, það er gjöf Bláa hersins í tilefni af fullveldsafmælinu“, segir Tómas Knútsson. Það er síður en svo langsótt að nefna fullveldi Íslands 1918 í sömu andrá og Alþjóðlega hreinsunardaginn. Frumkvæðið kemur frá Eistlandi, sem einmitt lýsti yfir sjálfstæði þetta sama ár. „Alþjóðlegi hreinsunardagurinn er gjöf Eistlands til heimsins á 100 ára afmæli sínu, hreinni og betri pláneta og betri framtíð fyrir alla,” segir í yfirlýsingu hreyfingarinnar sem nýtur stuðnings ríkisstjórnar Eistlands.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra tilkynnti á dögunum að Hreinsum Ísland, verkefni Landverndar og Bláa hersins, hafi verið tilnefnt til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2018 ásamt Hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu.

Það er því kannski við hæfi að starfsfólk forsætisráðuneytisins muni leggja átakinu lið með því að taka þátt í hreinsuninni á laugardag. Auk Bláa hersins standa Landvernd, JCI, Plastlaus September og ýmsir plokkarahópar að átakinu og er vonast við að fjöll af rusli verið hreinsuð í tengslum við þennan alheimsviðburð.

Landvernd hefur haft samband við öll sveitarfélög landsins og hvatt þau til að standa við bakið á sínum íbúum.

Blái herinn hefur stundað strandhreinsun í mörg ár, en fengið aukinn byr í seglinn á undanförnum árum vegna stóraukins áhuga á málefninu jafnt heima sem erlendis, og er nærtækast að nefna plokkara-hreyfinguna. 

Svo mikið er víst að verkefnin eru næg. Á hverju ári enda átta milljón tonn af plasti í hafinu. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðann, hvatti heimsbyggðina fyrr á árinu til að sameinast gegn plastmengun og sagði stærð vandans slíkan að nú væri plastöreindur í sjónum „fleiri en stjörnurnar í vetrarbrautinni.”

Alþjóðlegi hreinsunardagurinn nýtur stuðnings UN Environment, Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem hóf átakið #CleanSeas eða Hrein höf fyrir ári. Í Heimsmarkmiðum samtakanna um sjálfbæra þróun er stefnt að því í markmiði númer 14, “Líf í vatni”, að eigi síðar en árið 2025 verði verulega dregið úr og komið í veg fyrir hvers kyns mengun sjávar, einkum frá starfsemi á landi, þar með talið rusl í sjó.

Höfundur er Upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×