Segir engar viðræður hjá Íslandsbanka og WOW Air

Bankastjóri Íslandsbanka hefur ekki átt í neinum viðræðum við WOW Air. Greint var frá því í Fréttablaðinu í morgun að stjórnendur og ráðgjafar WOW Air hefðu rætt við forsvarsmenn Íslandsbanka, Arion og Landsbankans um mögulega aðkomu þeirra að fjármögnun flugfélagsins. Vísir náði tali af Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, sem neitaði að hafa átt í viðræðum við WOW Air.
Þegar rætt var við Eddu Hermannsdóttur, samskiptastjóra Íslandsbanka, segir hún bankann ekki hafa tekið þátt í neinum viðræðum.
Spurð hvort Íslandsbanki hefði rætt við aðra banka um hugsanlega aðkomu að fjármögnun að WOW Air sagðist hún hvorki geta staðfest það né neitað. Ekki hefur náðst í bankastjóra Arion eða Landsbankans en fjölmiðlafulltrúar þeirra banka hafa varist fregna í dag.
Vinna flugfélagsins WOW Air við skuldabréfaútboð er í fullum gangi. Skúli Mogensen sagði í samtali við Bloomberg í síðustu viku að tíðinda af útboðinu væri að vænta öðru hvoru megin við helgina. Í svari WOW við fyrirspurn Vísis í gær sagðist Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi flugfélagsins, geta skýrt nánar frá því í vikulok.

Fréttablaðið sagði WOW Air skoða þann möguleika af alvöru að leita liðsinnis bankanna til að tryggja að lágmarksstærð yfirstandandi skuldabréfaútboðs félagsins, sem er jafnvirði um 5,5 milljarða króna, verði náð.
Landsbankinn og Íslandsbanki eru í eigu íslenska ríkisins en rætt hefur verið um aðkomu ríkisins vegna rekstrarvanda WOW Air.
Greint var frá því í júlí síðastliðnum að fjögur ráðuneyti hefðu unnið að viðbragðsáætlun vegna hugsanlegra áfalla í rekstri mikilvægra atvinnufyrirtækja sem gætu kallað á viðbrögð af hálfu stjórnvalda. Sú vinna stendur enn yfir.
Morgunblaðið greindi frá því í gær að stjórnvöld hefðu fundað um liðna helgi vegna málefna flugfélagsins WOW air.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra iðnaðar- og ferðamála, sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 á mánudag að það væru engin sérstök tíðindi þó að hópurinn hefði komið saman til fundar um liðna helgi. Bætti hún við að það standi ekki til að ríkið hlaupi undir bagga með WOW Air.
Þórdís vinnu stjórnvalda ekki einblína á ytri aðstæður nú heldur sé horft til framtíðar varðandi mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir Ísland.
Tengdar fréttir

Telur ólíklegt að viðskipti með Icelandair verði stöðvuð vegna WOW
Í mjög sérstökum tilvikum hafa viðskipti verið stöðvuð í skamman tíma og nefnir forstjóri Kauphallarinnar sem dæmi dagana eftir efnahagshrunið árið 2008

Biðla til bankanna
Stjórnendur og ráðgjafar WOW air ræða nú við forsvarsmenn stóru bankanna þriggja um mögulega aðkomu þeirra að fjármögnun flugfélagsins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Segir erfiða daga krónunnar mögulega vegna WOW Air
Krónan hefur lækkað á hverjum einasta degi frá mánaðamótum en veikingin nemur 5,3 prósentum gagnvart evru.

Tíðinda að vænta frá WOW Air í vikulok
Vinna flugfélagsins WOW Air við skuldabréfaútboð er í fullum gangi. Forsvarsmenn félagsins vænta þess að geta skýrt nánar frá því í vikulok.