Viðskipti erlent

Argentínumenn fækka ráðuneytum um helming

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Mauricio Macri sagð að neyðarástand ríkti í efnahagsmálum Argentínumanna.
Mauricio Macri sagð að neyðarástand ríkti í efnahagsmálum Argentínumanna. vísir/getty
Argentínsk stjórnvöld boðuðu umfangsmiklar aðgerðir í dag til að stemma stigu við efnahagsvanda landsins. Forseti landsins, Mauricio Macri, sagði á blaðamannafundi að Argentínumenn gætu ekki lengur eytt um efni fram. Neyðarástand ríkti í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ríkið muni því ráðast í aukna tekjuöflun samhliða niðurskurði á útgjaldahliðinni.

Meðal þess sem stendur til að gera er að auka álögur á útflutning, auk þess sem argentínska ríkisstjórnin ætlar að fækka í sínum röðum. Forsetinn tilkynnti að ráðuneytum landsins yrði fækkað „um helming.“ Hann tilgreindi þó ekki hvaða ráðuneytum yrði lokað eða hvort hagræðingunni yrði náð fram með sameiningum.

Argentína er einn stærsti framleiðandi sojamjöls og sojaolíu í heiminum, auk þess sem landið framleiðir umtalsvert af maís og hveiti en frá og með næstu áramótum verður fjögurra prósenta útflutningsskattur lagður á þessar vörur. Að sama skapi verður þriggja prósenta skattur lagður á unnar vörur sem seldar eru úr landi.


Tengdar fréttir

Aftur leita Argentínumenn til AGS

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) er sagður hafa samþykkt að veita argentínskum stjórnvöldum lán sem nemur um 50 milljörðum bandaríkjadala, rúmlega 5200 milljörðum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×