Erlent

Segir Rússana vera útsendara GRU

Samúel Karl Ólason skrifar
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir tvo rússneska aðila sem sakaðir eru um að hafa eitrað fyrir Sergei Skripal og dóttur hans Júlíu með taugaeitrinu Novichok í mars vera starfsmenn leyniþjónustu herafla Rússlands, GRU. Það sé niðurstaða leyniþjónusta Bretlands.

Lögreglan í Bretlandi segir mennina tvo hafa flogið til London frá Moskvu tveimur dögum fyrir árásina og þeir hafi notast við nöfnin Alexander Petrov og Ruslan Boshirov. Nöfnin eru þó talin vera dulnefni.

Þá segir lögreglan að leifar af Novichok, sem þróað var í Rússlandi á tímum Sovétríkjanna, hafi fundist á hótelherbergi þeirra. Sömuleiðis náðust myndir af þeim á öryggisvélum skammt frá heimili Sergei Skripal þar sem taugaeitrinu var sprautað á hurðarhún.

Sjá einnig: Nafngreina Rússa sem grunaðir eru um Skripal-eitrunina



Rússar þvertaka fyrir að hafa komið að árásinni og segjast ekki hafa hugmynd um hverjir mennirnir eru. Í ræðu sinni á breska þinginu í dag sagði May þó að yfirvöld Rússlands væru að dreifa lygum og rangfærslum.

Sergei Skripal er fyrrverandi rússneskur njósnari en hann var fangelsaður í Rússlandi árið 2006 fyrir að hafa gefið leyniþjónustu Bretlands upplýsingar um útsendara Rússa í Evrópu. Sergei fannst meðvitundarlaus á bekk fyrir utan verslunarmiðstöð í Salisbury ásamt dóttur sinni, hinni 33 ára gömlu Yuliu. Þau lifðu bæði af.

Þann 30. júní urðu þau Dawn Sturgess og Charlie Rowley einnig fyrir eitrun vegna Novichok á heimili þeirra. Sturgess dó nokkrum dögum seinna en þau eru ekki talin tengjast Rússlandi á nokkurn hátt. Rowley segist hafa fundiði ilmvatnsflösku sem hann gaf Sturgess. Talið er að taugaeitrið hafi verið í þeirri flösku.

Skripal eitrunin leiddi til umfangsmikilli refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn Rússlandi og voru rússneskir erindrekar og grunaðir njósnara vísað frá fjölda landa í massavís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×