Viðskipti erlent

Virði Bitcoin hríðfellur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bitcoin reis hratt undir lok síðasta árs. Fallið hefur því verið hátt á undanförnum mánuðum.
Bitcoin reis hratt undir lok síðasta árs. Fallið hefur því verið hátt á undanförnum mánuðum.
Bitcoin og aðrar rafmyntir hafa hríðfallið í verði í dag en fjárfestar óttast að stöndug fyrirtæki á Wall Street séu að verða afhuga stafrænum gjaldmiðlum.

Titringurinn er rakinn til fréttar sem birtist í Business Insider. Þar var þess getið að fjárfestingabankinn Goldman Sachs hefði skotið hugmyndum sínum um að opna rafmyntaskiptimarkað á frest - auk þess sem stærstu lánveitendurnir vestanhafs væru að setja sífellt stærra spurningarmerki við rafmyntir.

Fréttirnar urðu til þess að Bitcoin hefur fallið um rúmlega fimm prósent frá opnun markaða í Bandaríkjunum í morgun. Virði Bitcoin hefur rýrnað um næstum 70 prósent á síðastliðnum níu mánuðum. Um miðjan desember síðastliðinn var virði eins Bitcoin um 19 þúsund bandaríkjadalir en stendur nú í rúmlega 6300 dölum. Virðið hefur lægst farið í 5887 dali og telja greinendur að ekki sé útilokað að það kunni að verða enn lægra fyrir lok árs.

Aðrar rafmyntir hafa einnig lækkað í verði það sem af er degi. Etherum hefur fallið um 20 prósent, Litecoin um 11 prósent og Ripple um ríflega 7 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×