Handbolti

Tvíburasystir Noru Mörk sagði henni frá myndunum: Ég skammaðist mín svo mikið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nora Mörk.
Nora Mörk. Vísir/Getty
Þetta var mjög erfitt ár fyrir norsku handboltakonuna Noru Mörk en nú er ár síðan að hún áttaði sig á því að einhver hafði brotist inn í símann hennar.

Sá hinn sami komst yfir mjög persónulegar og viðkvæmar myndir sem fóru í framhaldinu á flug út um allt internetið.

Nora Mörk mætti til sjónvarpskonunnar Anne Lindmo á NRK og ræddi þetta skelfilega ár sitt.

Það var ekki nóg með að hún þurfti að glíma við þessa myndamartröð þá sleit hún einnig krossband í febrúar.

„Ég skammaðist mín svo mikið. Að þurfa að fara með símann til pabba og segja hvað hafði gerst. Það tók mig nokkrar vikur að þora því. Þá höfðu foreldrarnir örugglega áttað sig á því að eitthvað var að því mér leið svo illa. Þau vissu orðið að eitthvað var að en gátu þó aldrei giskað að það væri svona stórt,“ sagði Nora Mörk í sjónvarpsviðtalinu

Nora Mörk.Vísir/Getty
Nora Mörk á tvíburasystur sem heitir Thea og er líka í handbolta. Thea er þó ekki eins öflugur leikmaður og systir síns. Það var hins vegar Thea sem sagði systur sinni fyrst frá myndunum.

„Landsliðið var komið saman í Þrándheimi og hún hringdi í mig og spurði mig hvort ég væri ein. Síðan bað hún mig um að setjast niður,“ lýsir Nora og heldur svo áfram.

„Hún sagði mér síðan frá þessu. Ég man eftir því að ég sat á rúminu og púlsinn fór frá núll upp í tvö hundrað. Ég byrjaði að skjálfa. Hjartað mitt datt í gólfið. Ég hugsaði: Er þetta ég? Hvernig getur þetta verið satt?,“ sagði Nora.

Nora Mörk ákvað síðan að koma úr felum og tala um þetta opinberlega og úr varð mikið fjölmiðlamál. Hún hefur fengið mikið hrós fyrir að búa með því til mjög sterka fyrirmynd fyrir stelpur sem hafa lent í sömu stöðu og hún.

„Ég hef líklega breyst svolítið á þessu eina ári og er orðin lokaðari og óöruggari. Ég hef átt í vandræðum með að sætta mig við þetta og verða ég sjálf aftur. Ég er ekki neikvæð en svo verður líf svona neikvætt,“ sagði Nora.

Nora Mörk er að koma til baka inn á handboltavöllinn og er staðráðin að vinna sér sæti í EM-hópi Þóris Hergeirssonar.  Það má lesa allt viðtalið við hana hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×