Innlent

Herör gegn dónaskap í ráðhúsinu í Borgarnesi

Sveinn Arnarsson skrifar
Ráðhússstarfsmenn í Borgarnesi vilja ekki meiri dónaskap.
Ráðhússstarfsmenn í Borgarnesi vilja ekki meiri dónaskap. Fréttablaðið/Pjetur
Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, segir samskipti íbúa við starfsfólk sveitarfélagsins of oft á neikvæðum nótum þar sem hreytt er ónotum eða köpuryrðum að starfsmönnum sveitarfélagsins við skyldustörf. Mannauðsstjóra hefur verið falið að skrá niður slík tilvik innan sveitarfélagsins.

Málið var tekið fyrir á síðasta sveitarstjórnarfundi Borgarbyggðar. Í skýrslu sveitarstjóra kemur fram að hann telji þennan samskiptamáta íbúa við starfsfólk ólíðandi. Starfsmenn í afgreiðslu, einstaklingar sem síst eiga skilið óheflaða framkomu í sinn garð, verði því oft á tíðum fyrir neikvæðum samskiptum. Nú sé kominn tími til að skoða starfsumhverfi þessara einstaklinga.

„Eitt þarf að fara sérstaklega yfir í sambandi við starfsumhverfi starfsfólks hér í ráðhúsinu. Það hefur komið of oft fyrir að starfsfólk ráðhússins verður fyrir óviðunandi framkomu einstaklinga þegar það er að sinna sínum vinnuskyldum hvort sem er að svara í símann, taka á móti erindum eða starfa á vettvangi sveitarfélagsins utandyra. Oft bitnar slíkt viðmót á þeim sem síst skyldi eins og starfsfólki í afgreiðslunni,“ segir í skýrslunni.



Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar. Fréttablaðið/Pjetur
Gunnlaugur segir þessi samskipti ekki einskorðuð við Borgarbyggð heldur sé þetta í fleiri sveitarfélögum. „Óviðunandi framkoma gagnvart starfsfólki sveitarfélagsins er óásættanleg og á ekki að líðast,“ segir hann.

„Ég er ekkert að segja að þetta sé almennt eða viðvarandi. Þetta gerist bara of oft. Bæði verður starfsfólk fyrir óhefluðu orðavali og köpur­yrðum þegar fólk sinnir erindum í ráðhúsinu en einnig þegar starfsfólk fer í úttektir og eitthvað því um líkt í sveitarfélaginu. Við þurfum að skoða þetta alvarlega.“

Með því að skrá tilvikin innan sveitarfélagsins er starfsfólki gert kleift að ræða um þessi samskipti. Markmiðið sé einnig að verja starfsumhverfi starfsfólks.

„Starfsmenn bæjarins eiga að finna það að þessi hegðun er ekki viðeigandi. Það er okkar verkefni að verja starfsumhverfi starfsmanna bæjarins. Ef við ræðum þessa hluti ekki og drögum fram það sem betur má fara þá breytist ekkert,“ bætir Gunnlaugur við. „Maður ætlast til þess að bæjarbúar séu kurteisir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×