Viðskipti erlent

Blaðamaður Business Insider hraunar yfir „nýjasta lággjaldaflugfélag Íslands“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Flugvél flugfélagsins Primera Air.
Flugvél flugfélagsins Primera Air. Vísir/getty
Blaðamaður Business Insider er afar óvæginn í garð flugfélagsins Primera Air í upplifunarpistli sem birtur var á vef miðilsins í gær. Blaðamaðurinn kynnir Primera Air til leiks sem „nýjasta lággjaldaflugfélagi Íslands“ og segir upplifun sína af flugi með félaginu afar slæma.

Sjá einnig: Íslendingar lýsa martraðarhelgi Primera Air

Blaðamaðurinn, Rachel Premack, segir í pistli sínum að hún hafi bókað flug með Primera Air, sem er í eigu Íslendinga en með skráða starfsemi í Lettlandi og Danmörku, frá París til New York í lok júlí síðastliðnum. Hún segist hafa verið ánægð með verðið og kveðst auk þess gera sér fulla grein fyrir því að um lággjaldaflugfélag sé að ræða. Þannig hafi hún búist við óþægilegum sætum, þrengslum og takmarkaðri farangursheimild. Premack var hins vegar aldrei hleypt um borð í flugvél Primera Air.

„Þegar fluginu hafði verið frestað um marga klukkutíma vorum við flutt á hótel sem vissi ekki einu sinni af komu okkar. Ég þurfti að lokum að borga háar fjárhæðir fyrir flug heim. Þann 29. ágúst hafði ég ekki enn fengið greidda þá 1950.89 Bandaríkjadali sem Primera skuldar mér,“ skrifar Premack.

Fluginu aflýst eftir klukkustundabið

Premack lýsir því svo í smáatriðum hvernig atburðarásin gekk fyrir sig en hún mætti á flugvöllinn í París um klukkan 17. Flugvél Primera Air átti að fara í loftið 18:50. Premack segir um 200 farþega hafa beðið við hliðið á flugvellinum en 20 mínútum áður en flugið átti að fara í loftið var enn ekki byrjað að hleypa inn í vélina. Hún segist hafa spurst fyrir um mögulega seinkun en engin svör fengið.

„En klukkan 20:30 var ég orðin uppgefin og stressuð. Foreldrar mínir hringdu í Primera úr bandarísku símanúmerum sínum en enginn svaraði.“



Sjá einnig: Keðjuverkun skýri „ægilegar tafir“ hjá Primera Air

Premack segir að tilkynning hafi loksins borist frá Primera klukkan 22:30, þremur og hálfri klukkustund eftir að flugvélin átti að fara í loftið. Þá var tilkynnt um að fluginu væri aflýst.

Í svari Primera Air, sem Premack sendi flugfélaginu vegna pistilsins, segir að skilaboð séu send á farþega um leið og félagið fá upplýsingar um ástæður að baki seinkun á flugi. Þá sendi félagið einnig beiðni um matarmiða fyrir farþegana. Premack segist hvorki hafa fengið skilaboð frá flugfélaginu né matarmiða daginn sem hún átti pantað umrætt flug.

Pistil Premack, sem hún birtir ásamt myndum, má lesa í heild hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×