Bíó og sjónvarp

Höfundur Simpsons-þáttanna áréttar að Michael Jackson ljáði persónu rödd sína

Birgir Olgeirsson skrifar
Michael Jackson
Michael Jackson vísir/getty
Höfundur þáttanna um Simpson-fjölskylduna hefur áréttað í eitt skipti fyrir öll að konungur poppsins, Michael Jackson, ljáði í raun og veru karakter í þáttunum rödd sína.

Um er að ræða þáttinn Stark Raving Dad þar sem Homer Simpson endar á stofnun fyrir geðsjúka og hittir þar fyrir Leon Kompowsky sem hélt því fram að hann væri Michael Jackson.

Þegar listinn yfir leikara sem talsettu þáttinn var birtir var John Jay Smith sagður maðurinn á bak við rödd Kompowsky en Matt Groening, höfundur The Simpsons, sagði í ástralska þættinum The Weekly að þetta hefði í raun og veru verið Michael Jackson.

Groening segist hafa fengið símtal frá Michael Jackson um miðja nótt en hélt að um hrekk væri að ræða. Það kom hins vegar í ljós að þetta var tónlistarmaðurinn sjálfur sem sagðist elska Bart Simpson og vildi fá að vera með.

„Hann léði rödd sína en vildi ekki að minnst yrði á það. Það tengdist einhverju samkomulagi við útgefanda hans,“ segir Groening.

Þegar kom að því að syngja lögin þurfti að fá söngvara sem gat hermt eftir Jackson. „Og Jackson stóð og fylgdist með söngvaranum sem var svo stressaður. Hann varð að hljóma eins og Jackson.“

Söngvarinn sem um ræðir er gítarleikari að nafni Kipp Lennon sem endurtók leikinn í Hollywood Bowl árið 2014 þegar hann flutti lagið Happy Birthday Lisa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×