Lífið

Öllu vanari kuldanum

Benedikt Bóas skrifar
Kristín Júlla og Margrét
koma báðar að gerð kvikmyndar
eftir teiknimyndasögum
Peters Madsen
Kristín Júlla og Margrét koma báðar að gerð kvikmyndar eftir teiknimyndasögum Peters Madsen
Tökur standa nú yfir á dönku stórmyndinni Valhalla, eða Goðheimum eins og hún kallast á íslensku, í Danmörku.

Tvær íslenskar leikkonur leika í myndinni, Salóme Gunnarsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir. Þá kemur Netop að framleiðslunni en fyrirtækið hefur gert Hrúta og Undir trénu meðal annars. Síðan eru það stórstjörnurnar bak við tjöldin, Margrét Einarsdóttir búningahönnuður og förðunarmeistarinn Kristín Júlla Kristjánsdótt

Þetta er ævintýramynd um þau Röskvu og Þjálfa og ævintýri þeirra. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta víkingamynd og kallast Goðaheimar á íslensku. Hún er gerð eftir hinum vinsælu teiknimyndum Valhalla sem Peter Madsen gerði. Danski leikstjórinn Fenar Ahmad leikstýrir og skrifar handritið ásamt Adam August.

„Hitinn hefur verið mjög stór hindrun fyrir okkur. Það er búið að krefjast alls konar lausna að reyna að hjálpa leikurunum í þessari hitabylgju,“ segir Margrét.

„Sumir leðurklæddir frá toppi til táar og aðrir með mikil og flókin gerfi.

Maður er vanari að díla við kuldann sko,“ bætir Kristín við.

Hitinn hefur gert leikurum erfitt fyrir enda hafa þeir þurft að klæðast þungum búningum, oft úr leðri frá toppi til táar, og mikið sminkaðir, en hitinn í Skandinavíu þetta sumarið hefur slegið öll met.

Þær stöllur eru ánægðar með hvernig til hefur tekist. Vinnuaðstaða og allt í kringum myndina sé upp á tíu.

„Það er búið að vera alveg frábær upplifun að vinna hérna í Danmörku. Það er alveg frábært fyrirtæki sem heitir Profile pictures í samvinnu við Netop films. Það er ekki svo oft sem maður fær tækifæri til að hanna ævintýramyndir. Við höfum fengið frábært starfsumhverfi, skilning og stuðning. Alveg einstakt fólk í hverri stöðu,“ segir förðunarmeistarinn Kristín Júlla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×