Erlent

95 ára samverkamaður nasista sendur frá Bandaríkjunum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
95 ára gömlum samverkamanni nasista var vísað frá Bandaríkjunum til Þýskalands í gær. Maðurinn hefur verið án ríkisborgararétts í tæp 15 ár en Bandarísk stjórnvöld hafa lengi talið hann síðasta eftirlifandi samverkamann nasista í Bandaríkjunum.

Maðurinn, Jakiw Palij, sem fæddist í þeim hluta Póllands sem í dag tilheyrir Úkraínu er talinn hafa verið samverkamaður nasista í þrælkunarbúðunum Trawniki í Póllandi sem var þá hernumið af nasistum.

Hann hlaut Bandarískan ríkisborgararétt árið 1957 en missti hann árið 2003 vegna tenginga hans við nasista. Dómstólar í Bandaríkjunum komust að því að hann hafi aðstoðað við ofsóknir gagnvart gyðingum en væri ekki persónulega ábyrgur fyrir morðum á þeim.

Síðan hann var sviptur ríkisborgarrétti hefur ekkert ríki viljað taka við Palij. Hann hefur sagst viljað búa í friði á heimili sínu í Queens í New York en reglulega hefur verið mótmælt við heimili hans á undanförnum 15 árum. Palij hefur ávallt neitað því að hafa verið samverkamaður nasista.

Nú hafa þýsk stjórnvöld samþykkt að taka við manninum en sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi segir að það hafi verið siðferðilega rétt ákvörðun að reka Palij frá Bandaríkjunum. 

„Þetta kann ekki að hafa verið lagaleg réttlæting en þetta er siðferðileg réttlæting,“ segir Richard Grenell, sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi.

„Þetta er einstaklingur sem vann fyrir þáverandi stjórnvöld í Þýskalandi og við töldum það siðferðilega skyldu okkar að vísa honum frá Bandaríkjunum og frá allri ró og næði. Hann er 95 ára, hann mun ábyggilega deyja fljótlega, hann er nokkuð veiklulegur og við vildum tryggja að hann myndi ekki deyja í friði og ró í Bandaríkjunum heldur að hann yrði færður til baka til að mæta réttvísinni.“

Palij kom til Dusseldorf í Þýskalandi í morgun en hann mun eyða síðustu árum ævinnar á heimili fyrir aldraða í bænum Ahlen nærri Munster í vesturhluta Þýskalands. Ekki hefur verið útilokað að mál hans verði tekið upp fyrir þýskum dómstólum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×