Innlent

Beint í berjamó á síðustu dögum sumarsins

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson fer á hverju ári í berjamó. Hann segir að víða sé ber að finna en líklega sé langmest af þeim á Austfjörðum.
Sveinn Rúnar Hauksson fer á hverju ári í berjamó. Hann segir að víða sé ber að finna en líklega sé langmest af þeim á Austfjörðum. Sveinn Rúnar Hauksson
Enn er örlítið eftir af sumri þó það styttist óðum í endalok. Það er snjallt að loka sumrinu með skemmtilegri ferð í berjamó. Víða eru góðir staðir fyrir berjatínslu en spurningin er sú hvar sprettan sé best í ár. Hver er betri til að svara því en Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og áhugamaður um ber og berjatínslu?

„Ef fólk ætlar í berjamó og vill ná að fylla fötur sínar eða jafnvel frystikistu þá eru Austfirðir líklega besti staðurinn. Sprettan kemur þar vel undan sumri og fólk byrjaði í raun að tína þar fyrir mánaðamótin síðastliðnu,“ segir Sveinn Rúnar sem sjálfur var á Ströndum í berjatínslu þegar Fréttablaðið sló á þráðinn.

„En ég hef ekki séð eitt ber í Borgar­firðinum, ekki grænjaxla eða neitt. Ég var í Þórsmörk um daginn og tíndi upp í mig eitt og eitt og tíndi alls 12 ber. Þau smökkuðust ágætlega, en voru þó lítil. Þau komust allavega vel fyrir í lófanum.“

Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og berjaáhugamaður.

Einnig gott á Norðausturlandi

Horfur eru ekki sérlega góðar hér á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni en aldrei að vita hvað náttúran hefur fram að færa. Góðir staðir fyrir tínslu hér á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni eru meðal annars Heiðmörk, svæðið í kringum Rauðavatn, í grennd við Nesjavallaleiðina, Mosfellsdalurinn og heiðarnar beggja vegna vegarins, Kjósin, Esjurætur og Hvalfjörðurinn.

„Það er að rætast úr þessu hérna á Ströndum sýnist mér. Það er líka býsna gott á Norðausturlandi. Ég fékk líka fréttir af Tröllaskaga og frægu berjakistunni sem Böggvisstaðafjall er ofan Dalvíkur. Þar eru komin falleg ber en þó ekki alveg þroskuð orðin. Þannig að ég held að það þurfi að bíða örlítið en það er hins vegar ekkert of fljótt að fara af stað núna. Það er að minnsta kosti allt klárt fyrir austan,“ bætir Sveinn Rúnar við. 

Bláberjasulta  á tvo vegu 

Bláberjasulta sykurlaus

700 g bláber

1 dl hlynsíróp eða kókospálmasykur

1 tsk. vanilluduft

Hreinsið og skolið berin. Maukið allt í blandara. Setjið blönduna í pott og sjóðið í um 10 mínútur. Hellið í hreinar glerkrukkur og geymið í kæli.

Bláberjasulta með sykri

500 g bláber

350 g strásykur

2 tsk. vatn

Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið í um það bil 10 mínútur. Hellið svo blöndunni því næst í hreinar glerkrukkur og geymið í kæli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×