Menning

Stærra og veglegra Listasafn

Glæsilegt húsnæði Listasafnsins á Akureyri verður opnað aftur laugardaginn 25.ágúst.
Glæsilegt húsnæði Listasafnsins á Akureyri verður opnað aftur laugardaginn 25.ágúst. MYND/Listasafnið á Akureyri
Laugardaginn 25. ágúst verða dyr Listasafnsins á Akureyri opnaðar að nýju eftir stórfelldar endurbætur. Sýningarsalir voru áður fimm en eru nú tólf. Að auki verður nýtt kaffihús opnað á safninu og einnig safnbúð.

Sex nýjar sýningar verða opnaðar í safninu. Listamennirnir eru: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Sigurður Árni Sigurðsson, Hjördís Frímann og Magnús Helgason. Einnig verða opnaðar sýningar á verkum úr safneign Listasafnsins á Akureyri og Listasafns ASÍ, og ljósmyndasýningin Frá Kaupfélagsgili til Listagils.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×