Formúla 1

Hamilton á ráspól eftir dramatík á Spa

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hamilton í brautinni í dag áður en tók að rigna
Hamilton í brautinni í dag áður en tók að rigna Vísir/Getty
Lewis Hamilton verður á ráspól í belgíska kappakstrinum á morgun. Hann náði besta tíma í tímatökunni eftir dramatískan lokasprett.

Rétt áður en lokakafli tímatökunnar hófst fór að hellirigna á brautinni í Spa og voru aðstæður mjög erfiðar þegar tíu bestu ökuþórarnir slógust um ráspólinn.

Lewis Hamilton lenti í vandræðum í annari tilraun sinni á lokakaflanum á meðan Ferrari mennirnir Sebastian Vettel og Kimi Raikkonen voru í forystunni.

Rétt áður en Hamilton fór af stað í sinn þriðja hring þá stytti aftur upp og urðu aðstæður mun betri. Hamilton náði því að stórbæta tíma Vettel og taka forystuna.

Vettel átti eftir að klára sína síðustu tilraun en hann náði ekki hraðari hring og varð að sætta sig við þriðja sætið.

„Þetta var ein erfiðasta tímataka sem ég man eftir,“ sagði Hamilton þegar tíminn var úti. „Enginn okkar var búinn að æfa sig í rigningu í vikunni svo ég get ekki einu sinni lýst því hversu erfitt þetta var.“

Finninn Raikkonen var farinn út úr bíl sínum áður en Hamilton og Vettel fóru af stað í loka hringi sína og var ekki sáttur með þá ákvörðun Ferrari teymisins. Hann endaði með sjötta hraðasta hringinn því hann náði ekki að mæla tíma eftir að stytt hafði upp.

Esteban Ocon á Force India náði þriðja sætinu og liðsfélagi hans Sergio Perez tók fjórða besta tímann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×