Formúla 1

Uppgjör: Herforinginn Vettel nýtti hraðann á Spa

Bragi Þórðarson skrifar
Vettel nýtti hraða Ferrari bílsins í gær
Vettel nýtti hraða Ferrari bílsins í gær Vísir/Getty
Sebastian Vettel fagnaði sigri á hinni sögufrægu Spa braut í Belgíu þegar Formúla 1 fór aftur af stað eftir sumarfrí. Mikil læti voru strax í upphafi þegar þrír ökuþórar þurftu að hætta keppni eftir árekstur. 

Vettel ræsti annar á eftir aðal keppinaut sínum um heimsmeistaratitil ökumanna, Lewis Hamilton. Bretinn tryggði sér ráspálinn með glæsilegum akstri á Mercedes bíl sínum á blautri brautinni í tímatökunni á laugardag.

Í síðustu keppnum hefur verið ljóst að Ferrari bíllinn er hraðari. Vettel glutraði niður fyrsta sætinu bæði í Ungverjalandi og Þýskalandi en náði loks að landa sigri í gær.

Það átti enginn séns í Vettelvísir/getty
Ferrari bíllinn í annari deild á Spa

Það tók Sebastian Vettel ekki nema 25 sekúndur að komast fram úr Hamilton í keppninni í gær. Þá nýtti Þjóðverjinn sér grip Ferrari bílsins út úr fyrstu beygju sem og yfirburða afl hans á beina kaflanum eftir fjórðu beygju.

Vettel keyrði næstu 44 hringina eins og herforingi og tryggði sér sinn 52. sigur í Formúlu 1 á ferlinum. Sigurinn gerir Þjóðverjann að þriðja sigursælasta ökumanninum frá upphafi á eftir Hamilton og goðsögninni Michael Schumacher.

Þrátt fyrir yfirburði Ferrari bílana um helgina náðu Mercedes að auka forskot sitt í keppni bílasmiða. Hamilton kom annar í mark og liðsfélagi hans, Valtteri Bottas, varð fjórði. Kimi Raikkonen varð frá að hverfa eftir samstuð frá Daniel Ricciardo á fyrsta hring.

Verstappen var vel studdur í Belgíuvísir/getty
Mercedes hefur verk að vinna

„Ferrari bíllinn var hraðari í dag,“ sagði Lewis Hamilton eftir kappaksturinn. Hamilton náði lítið að ógna Vettel í brautinni og þurfti að játa sig sigraðan.

Það er því alveg ljóst að liðið hefur verk að vinna ætli það sér að vinna titla í ár. Mercedes hefur aðeins 15 stiga forskot á Ferrari í keppni bílasmiða og Vettel minnkaði muninn í Hamilton í 17 stig með sigrinum.

Í þriðja sæti í belgíska kappakstrinum varð Max Verstappen hjá Red Bull. Þessi tvítugi ökuþór fæddist í Hollandi en er með belgískan ríkisborgararétt og má því segja að hann hafi verið á heimavelli á Spa. Stuðningurinn var eftir því og var appelsínugulur her sem fagnaði ógurlega þegar Max kom í mark í verðlaunasæti.

Árekstur Alonso og Leclerc var hrikalegur á að horfavísir/getty
Stór árekstur í fyrstu beygju

Strax í fyrstu beygju keppninnar varð harkalegur árekstur. Þjóðverjinn Nico Hulkenberg tókst ekki að bremsa Renault bíl sinn nægilega niður og keyrði því beint aftan á McLaren bíl Fernando Alonso. Við það klessti Alonso aftan á Sauber bíl Charles Leclerc með þeim afleiðingum að McLaren bíllinn skaust upp í loft. Bíll Alonso flaug yfir Sauber bílinn og lenti á geislaboganum sem varði höfuð Leclerc.

„Þarna sannaði geislaboginn gildi sit,“ sagði Alonso eftir kappaksturinn. Boginn var tekinn í gildi fyrir þetta tímabil og var hann gagnrýndur þegar hann var fyrst tilkynntur. Fáir geta gagnrýnt tilverurétt hans í dag þar sem boginn bjargaði líklega lífi Leclerc í gær.

Hulkenberg, Alonso og Leclerc þurftu allir að hætta keppni strax eftir áreksturinn á fyrsta hring. Daniel Ricciardo og Kimi Raikkonen skullu einnig saman í átökunum í þessari fyrstu beygju, þeir þurftu ekki að hætta samstundis en náðu hvorugur að klára keppni.

Næsta keppni fer fram um næstu helgi á hinni mögnuðu Monza braut á Ítalíu. Þar fær Ferrari ávalt mikinn stuðning og ætlar liðið að freista þess að ná aftur forystu í keppni bílasmiða þar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×