Lífið

Ingó telur að veðrið muni ekki hafa áhrif á stemninguna í Brekkusöngnum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ingó hefur stýrt Brekkusöngnum frá árinu 2013.
Ingó hefur stýrt Brekkusöngnum frá árinu 2013. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, segir stemninguna fyrir Brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vera góða, eins og fyrri ár, en Ingó er að stýra Brekkusöngnum í kvöld, sjötta áríð í röð.

„Ég myndi ekki segja að þetta væri erfiðasta giggið mitt, því manni finnst einhvern veginn allir vera svo rosalega spenntir fyrir þessu. Maður fer eiginlega bara og ýtir á play því maður veit að brekkan er alltaf klár.“

Lagalistinn klár

Ingó sagðist ekki vera með fjöldann sem kæmi í brekkuna á hreinu, en hann var kvaðst viss um að það væri spenna og stemning í mannskapnum.

Aðspurður hvort lagalistinn væri klár sagði Ingó að svo væri.

„Hann var kláraður bara í dag. Það eru náttúrulega allir með skoðanir og maður er alltaf að leita eftir áliti héðan og þaðan. Það eru ákveðin lög sem eru alltaf tekin, svo í bland eru svona eitt og eitt alíslenskt og jafnvel erlent. Það má segja að þetta sé solid klassískur listi með smá kryddi.“

Telur að veðrið verði ekki vandamál

Nokkuð hefur verið um að tjöld hafi fokið í Vestamannaeyjum, og opnað hefur verið inn í íþróttahúsið þar sem veðurbarnir þjóðhátíðargestir geta leitað skjóls. Þrátt fyrir það segist Ingó ekki telja að vont veður muni spilla fyrir stemningunni í Dalnum í kvöld, en veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi.

„Það spáði mjög vondu veðri, en það er furðumikið í lagi ennþá, þannig ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Vonandi hangir þokkalega þurrt og hvessir ekki mikið, og þá er þetta bara íslenskt sumarveður. Smá úði og gola og þá eru allir sáttir.“

Brekkusöngurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Vísi klukkan 23 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×