Innlent

Boða til aukafundar: "Heimilislausir fá ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum“

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Boðað hefur verið til aukafundar í borgarráði á morgun klukkan 11.
Boðað hefur verið til aukafundar í borgarráði á morgun klukkan 11. Vísir
Fulltrúar minnihlutans í Reykjavík kröfðust þess að gripið yrði til aðgerða í málefnum heimilislausra í borginni og fór þess á leit við meirihlutann að boðað yrði til aukafundar um neyðarúrræði fyrir heimilislausa. Meirihlutinn hefur orðið við beiðni þeirra um fund og verður þetta rætt á aukafundi borgarstjórnar sem haldinn verður á morgun klukkan 11.

Heimilislausir fái ekki í sumarfrí frá áhyggjum sínum

„Við erum ánægð með það að þau hafi brugðist hratt við og haldið aukafund í borgarráði og vísa ég nú í yfirlýsingu okkar með það að heimilislausir fá ekki sumarfrí frá áhyggjum sínum,“ segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík.

Ástæðan fyrir því að minnihlutinn kallaði eftir fundi segir Vigdís að sé vegna ófremdarástands heimilislausra. „Engin viðbrögð, ekkert gert og sumarið er að klárast. Við ætlum að mæta til fundar með tillögur til úrbóta og vonast til að meirihlutinn vakni nú af þyrnirósarsvefni sínum.“

 

Ekki hægt að eiga heima í málefnasamningi

Umboðsmaður Alþingis fjallaði um stöðu utangarðsfólks í nýlegu áliti en þar segir að borgin hafi ekki náð að tryggja þessum hópi fullnægjandi aðstoð við lausn á bráðum húsnæðisvanda. Hópurinn hafi tæplega tvöfaldast á fimm árum.

„Þetta álit umboðsmanns Alþingis, þar sem borgin fær falleinkunn í þessum málaflokki, virðist ekki hafa vakið þau. Svo er vísað í að þessi málaflokkur sé inn í  stjórnarsáttmálanum og það eigi að bjarga öllu en eins og ég hef nú sagt á Facebook þá búa heimilislausir hvorki í stjórnarsáttmálanum né í glærusýningum. Við viljum aðgerðir strax,“ segir Vigdís.


Tengdar fréttir

Verði að taka á vanda utangarðsfólks

Minnihlutinn í borginni boðar neyðarfund hjá borgarráði vegna úrræðaleysis Reykjavíkurborgar í málefnum heimilislausra. Formaður borgarráðs vill ganga í verkið og samþykkti að halda fundinn í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×