Fótbolti

Eric Dier: Erum loksins búnir að bæta fyrir tapið á móti Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Risastór stund fyrir íslenska fótboltalandsliði en mjög mikil vonbrigði fyrir enska landsliðið. Aron Einar Gunnarsson og íslensku strákarnir fagna sigri á Englandi á EM 2016.
Risastór stund fyrir íslenska fótboltalandsliði en mjög mikil vonbrigði fyrir enska landsliðið. Aron Einar Gunnarsson og íslensku strákarnir fagna sigri á Englandi á EM 2016. Vísir/Getty
Enska fótboltalandsliðið er komið í undanúrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta í Rússlandi og miðjummanni liðsins finnst liðið loksins núna vera búið að bæta fyrir tapið á móti litla Íslandi í sextán liða úrslitum EM í Frakklandi sumarið 2016.

Eric Dier segir að núna séu sárin frá Íslandsleiknum loksins gróin. Liðið er aðeins 90 mínútum frá úrslitaleiknum í Moskvu en enska liðið mætir Króatíu í undanúrslitaleiknum annað kvöld.

Dier var í EM-hópnum fyrir tveimur árum og er því einn af leikmönnum enska liðsins sem höfðu hvað mest að sanna á þessu HM.

„Eftir Íslandsleikinn þá vissum við að hlutirnir þyrftu að breytast innan liðsins og það hefur mikið breyst á þessum tíma. Þetta var móment þar sem við vorum gríðarlega vonsviknir og þetta var eitthvað sem mátti ekki gerast aftur. Við vildum breyta hlutunum hjá okkur,“ sagði Eric Dier við BBC.

Íslensku strákarnir fagna sigri á Englandi á EM 2016.Vísir/Getty
„Við gerðum okkur líka grein fyrir því að við gætum hvergi annarsstaðar bætt fyrir þetta nema hér á þessu heimsmeistaramóti. Ekkert annað gæti grætt sárin frá tapinu á móti Íslandi,“ sagði Dier.

Enska landsliðið hefur slegið út Kólumbíu og Svíþjóð á leið sinni í undanúrslitaleikinn á móti Króatíu.

„Við höfum líka verið að reyna það. Tvö ár er langur tími. Þetta hefur verið langt ferli og margt hefur breyst. Við höfum komið öllu á réttan stað. Við lærðum af okkar mistökum sem er mjög mikilvægt og við höfum bætt fyrir þetta klúður á móti Íslandi,“ sagði Dier.

„Við höfum líka orðið varir við það að þjóðin er að baki okkur og við höfum náð að gleðja fólk. Það er frábært að vera með í því. Við erum bara rosalega ánægðir. Við erum jafnframt einbeittir á miðvikudaginn því við trúum því að þetta frábæra ferðalag sé ekki á enda,“ sagði Dier.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×