Erlent

Norður-Kóreumenn kalla viðræður við Bandaríkin „hörmulegar“

Kjartan Kjartansson skrifar
Mike Pompeo tekur í hönd Kim Yong-chol, varaformann miðstjórnar Verkamannaflokks Norður-Kóreu. Hann hitti ekki Kim Jong-un í ferð sinni að þessu sinni.
Mike Pompeo tekur í hönd Kim Yong-chol, varaformann miðstjórnar Verkamannaflokks Norður-Kóreu. Hann hitti ekki Kim Jong-un í ferð sinni að þessu sinni. Vísir/EPA
Fulltrúar Norður-Kóreu lýsa nýafstöðnum viðræðum sínum við Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og sendinefnd hans sem „hörmulegum“. Pompeo hafði skömmu áður sagt að viðræðurnar hefðu verið „gagnlegar“.

AP-fréttastofan hefur eftir talsmanni norður-kóreska utanríkisráðuneytisins að Bandaríkin hefðu „svikið anda“ leiðtogafundar Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta, í síðasta mánuði í viðræðum síðustu tvo daga. Það hefðu þau gert með því að setja „einhliða þrýsting“ um algera afkjarnavopnavæðingu Norður-Kóreu.

Í yfirlýsingu talsmannsins sagði að niðurstöður viðræðnanna yllu „miklum áhyggjum“ þar sem þær leiddu til hættulegs skeiðs þar sem vilji norður-kóreskra stjórnvalda til að afvopnast gæti minnkað en hann hefði fram að þessu verið staðfastur.

Annað hljóð var í Pompoe þegar hann ávarpaði fréttamenn á leið sinni heim frá viðræðunum sem fóru fram í Norður-Kóreu. Viðræðurnar hefðu verið gagnlegar og farið fram „í góðri trú“. Mikill árangur hefði náðst á sumum sviðum þótt enn væri mikið verk fyrir höndum á öðrum sviðum.

Trump forseti gekk sjálfur svo langt eftir fund sinn með Kim að fullyrða að kjarnavopnahætta stafaði ekki lengur af Norður-Kóreu. Í vikunni stærði hann sig af því að hafa komið í veg fyrir stríð á Kóreuskaga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×