Viðskipti innlent

Hægari vöxtur en áður í Airbnb hér á landi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá fundi Íbúðalánasjóðs í hádeginu.
Frá fundi Íbúðalánasjóðs í hádeginu. vísir/sigurjón
Tekjur af Airbnb-útleigu á Íslandi hafa vaxið hægar á fyrstu mánuðum ársins en á sama tímabili síðustu ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði en í hádeginu í dag stóð sjóðurinn fyrir fundi um áhrif Airbnb á íslenska húsnæðismarkaðinn.

Fjöldi gistieininga á Airbnb vex mun hægar áður og þá hefur bókunarhlutfall verið lægra í upphafi þessa árs en á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í skýrslu Íbúðalánasjóðs um Airbnb. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá hagdeild sjóðsins kynnti skýrsluna á fundinum í dag.

„Um 6.000 gistieiningar eru nú til leigu á Airbnb á Íslandi og hefur fjöldi þeirra rúmlega tvöfaldast á tveimur árum. Ólafur áætlar að um 1.500-2.000 íbúðir og herbergi á landsvísu séu í stöðugri útleigu á Airbnb og ekki í hefðbundinni notkun sem íbúðarhúsnæði. Fram kom í erindi hans að Reykjavík er sú höfuðborg í Vestur-Evrópu sem er með næstflestar Airbnb-skráningar miðað við höfðatölu, á eftir Lissabon í Portúgal,“ segir í tilkynningunni.

Greining hagdeildar Íbúðalánasjóðs bendir til þess að fjölgun Airbnb-gistieininga geti skýrt samanlagt allt að 5 til 9 prósent hækkun íbúðaverðs hér á landi á tímabilinu 2015 til 2017. Frekari rannsókna sé þó þörf á orsakasambandinu milli Airbnb-útleigu og húsnæðismarkaðar.

„Stóraukið framboð, bætt nýting og hærra verð í erlendri mynt hefur valdið mikilli aukningu í tekjum af Airbnb-útleigu undanfarin tvö ár, þrátt fyrir styrkingu krónunnar. Árið 2016 voru vergar tekjur af útleigu á Airbnb hér á landi um 9,4 milljarðar en í fyrra voru þær um 19,7 milljarðar. Vöxturinn nemur 110% milli ára. Til samanburðar veltu fyrirtæki sem skráð eru sem gististaðir 94 milljörðum króna árið 2017 samkvæmt tölum Hagstofunnar og velta þeirra jókst um 11% milli ára,“ sagði Ólafur Heiðar.

„Í mars sl. voru 30% Airbnb-íbúða og -herbergja á Íslandi staðsett í miðborg og vesturbæ Reykjavíkur en Airbnb-íbúðum á landsbyggðinni hefur hins vegar fjölgað talsvert hraðar en á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misseri. Milli mars 2016 og mars 2018 fjölgaði íbúðum og herbergjum til leigu í miðborg og vesturbæ Reykjavíkur um 200 en utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði þeim um 1.400.

Útgefnum leyfum fyrir skammtímaleigu hefur þó ekki fjölgað í takt við leigueiningarnar sem skráðar eru á Airbnb. Ólafur sagði að svo virðist sem illa gangi að framfylgja reglum um að umfangsmikil skammtímaleiga íbúða skuli vera leyfisskyld. Í nóvember 2017 voru um 60% íbúða í umfangsmikilli útleigu á Airbnb ekki skráð sem atvinnuhúsnæði þrátt fyrir reglur þar um. Svo virðist sem sveitarfélög verði árlega af hundruðum milljóna króna, jafnvel yfir milljarði, í formi fasteignagjalda vegna Airbnb-íbúða,“ segir í tilkynningu Íbúðalánasjóðs.


Tengdar fréttir

Fagna hertu eftirliti með heimagistingu

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar fagnar sérstöku átaksverkefni um hert eftirlit með heimagistingu sem ríkisstjórnin samþykkti nýverið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×